Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að Hvalfjarðargöng séu lokuð en að hjáleið sé um Hvalfjörð. Ástæða lokunarinnar kemur ekki fram en RÚV greinir frá því að mikill eldur hafi komið upp í bíl í göngunum en enginn hafi slasast. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu lengi lokunin mun vara.
Í nýrri tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að vel gekk að slökkva í bílnum en eldurinn kviknaði kl. 15:49 í dag. Þrír voru í bílnum og komust allir greiðlega út, engan sakaði. Bíllinn var á suðurleið kominn nokkuð á veg upp frá botni ganganna þegar kviknaði skyndilega í honum. Göngunum var umsvifalaust lokað og slökkvilið kallað til og var það komið á staðinn kl. 16:06.
Bíllinn varð strax alelda. Farþegar bílsins gripu til slökkvitækja í göngunum en eldurinn var of mikill til að það dygði til að ráða niðurlögum hans. Slökkvilið kom inn í göngin að norðanverðu þar sem reyk lagði suður göngin. Vel gekk að slökkva í bílnum.
Í tilkynningunni segir að eftir að reykræstingu ganganna ljúki verði að yfirfara allan búnað í göngunum til að tryggja öryggi þeirra. Reiknað er með því að lokun verði aflétt um klukkan 19:00 en það verður þó tilkynnt þegar af verður.
Hvalfjarðargöng hafa verið opnuð á ný.