Þann 17. ágúst síðastliðinn kvað hæstiréttur í Póllandi upp úrskurð þess efnis að tvö börn Abdelaziz Mihoubi skuli flutt til Íslands. Úrskurðir sama efnis hafa fallið á lægri dómstigum í Póllandi á undanförnum misserum.
Abdelaziz Mihoubi er íslenskur ríkisborgari sem kom hingað til lands á síðasta áratug síðustu aldar. Þá var hann landsliðsmaður Alsír í handbolta en hér á landi gerði hann garðinn frægan með Val, lék með meistaraflokki og þjálfaði yngri flokka.
Abdelaziz – eða Aziz, eins og hann kallar sig – kynntist pólskri konu á Íslandi. Bjuggu þau saman í um 12 ár og eru raunar enn löglega hjón. Aziz og pólska konan eignuðust tvö börn sem eru langt undir lögaldri í dag, og raunar langt undir 10 ára aldri. Aziz og konan ákváðu að skilja að skiptum. Skömmu eftir að þau hættu saman tók konan börnin með sér fyrirvaralaust til Póllands án þess að ræða við Aziz.
Þann 8. desember árið 2020 úrskurðaði áfrýjunardómstóll í Varsjá að konan skyldi fara með börnin aftur til Íslands. Felldi hann úr gildi úrskurð héraðsdóms þar í landi sem úrskurðaði móðurinni í vil. Hafði hún 14 daga til að fara eftir úrskurðinum en hún er enn í Póllandi með börnin.
Allar götur síðan hefur Aziz barist fyrir því að fá börnin til sín aftur en án árangurs, þó að hann virðist hafa lögin sín megin. Hæstiréttur í Póllandi hefur nú fyrirskipað með skýrum hætti að börnin skuli flutt til Íslands.
Aziz biðlar til íslenskra stjórnvalda um að fylgja málinu eftir með því að gefa út evrópska handtökutilskipun á barnsmóður hans svo afhenda megi honum börnin. „Börnunum mínum var rænt og þeim hefur verið haldið með ólöglegum hætti í Póllandi. Ég þarf hjálp íslenskra yfirvalda í málinu,“ segir Aziz í samtali við DV.