fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Nemandi réðst með hníf að Ingunni og kollega hennar í háskólanum í Osló

Björn Þorfinnsson
Föstudaginn 25. ágúst 2023 07:52

rpt

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingunn Björnsdóttur, íslenskur dósebt við Háskólann í Osló, varð fyrir árás hnífamanns í skólanum í gær  en árásin vakti mikinn óhug í Noregi. NRK  greindi fyrst frá árásinni en í frétt miðilsins kom fram að árásin hefði átt sér stað í lyfjafræðideild háskólans. Tveir kennarar særðust í árásinni, Ingunn  og kollegi hennar, sem bæði voru kennarar hins grunaða og þekktu því til hans.

Ingunn birti mynd af sér á sjúkrabeði í færslu á Facebook sem hún gaf DV góðfúslegt leyfi til að birta.

Tveir hnífar fundust á vettvangi árásarinnar en árásarmaðurinn var í kjölfarið yfirbugaður af nærstöddum nemendum og starfsfólki skólans sem varð vitni að árásinni. Hann var orðinn rólegur þegar lögreglu bar að garði og handtók hann.

Í umfjöllun NRK kom fram að annar prófessoranna hafði farið verr út úr árásinni og væri alvarlega slasaður á gjörgæslu. Í stuttum skilaboðum til DV segir Ingunn að hún hafi verið sú sem slasaðist meira í árásinni. Hún sé þó ekki í lífshættu og sé vongóð um að ná fullum bata. Á líkama hennar séu þó sextán ör eftir árásina.

Rektor háskólans sagði í frétt NRK að árásin væri sorgleg og litin alvarlegum augum. Sagði hann að nemendum og starfsfólki skólans hafi þegar verið boðin áfallahjálp vegna málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa