fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Héraðssaksóknari vill setja fimm menn í atvinnurekstrarbann

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 15. ágúst 2023 15:35

Mynd: Fréttablaðið/Eyþór

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við förum bara yfir það fyrir dómi,“ segir Finnur Þór Vilhjálmsson, saksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, við þeirri spurningu DV, hvað valdi því að embættið krefjist þess að fimm menn, sem ákærðir eru í skattsvikamáli, verði settir í atvinnurekstrarbann.

„Ákvæðið var sett inn til að stemma stigu við kennitöluflakki og notkun á félögum með takmarkaða ábyrgð í vafasömum tilgangi, eða misnotkun á félagaforminu, eins og það er kallað í athugasemdum með þessu ákvæði. Ákæruvaldið telur að ástæða sé til þess að gera þessa kröfu þarna en svo kemur bara í ljós hvernig fer með það fyrir dómi,“ segir Finnur.

Reynir á nýlegt ákvæði hegningarlaga

Krafan felur í sér að mönnunum verði bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meirihluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár.

Hér reynir á nýlegt ákvæði í hegningarlögum frá árinu 2019. Að sögn Finns Þórs hefur reynt nokkrum sinnum á ákvæðið fyrir dómi og hefur slíkri kröfu héraðssaksóknara ýmist verið hafnað af dómstólum eða fallist á hana. „Þetta er að mótast í dómaframkvæmd en ég veit ekki til að svona mál hafi farið til úrlausnar á æðra dómstigi,“ segir Finnur.

Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 30. ágúst. Ákært er fyrir meiriháttar brot gegn skattalögum og lögum um bókhald. Hér er langt frá því að vera um að ræða stærsta skattsvikamál sem borið hefur fyrir augu blaðamanna DV en málið er nokkuð flókið og snúið vegna meints samverknaðar hinna ákærðu, og allmörg félög, sem öll eru gjaldþrota og afskráð, koma við sögu.

Tilhæfulausir reikningar

Í fyrsta lið ákærunnar er maður ákærður fyrir að hafa sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri Stapafells ehf, síðar S-fell ehf, en núna gjaldþrota, staðið skil á efnislega röngum skattframtölum Stapafells gjaldárin 2017 til 2019 og fært til gjalda kostnað á grundvelli tilhæfulausra reikninga frá félögunum 1UXN, Menn og Verk, DÞJ verk og Hornbjarg. Með þessum reikningum er hann sagður hafa oftalið rekstrargjöld í skattskilum Stapafells upp á tæplega 76 milljónir króna.

Hann er síðan sakaður um að hafa oftalið innskatt hjá Stapafelli fyrir sömu gjaldár og þannig hafi félagið komið sér undan að greiða 18,2 milljónir í virðisaukaskatt sem því bar í rauninni að greiða.

Einnig er maðurinn ákærður fyrir að hafa rangfært bókhald Stapafells með  því að láta gjaldfæra þar tilhæfulausa reikninga frá áðurnefndum aðilum sem leiddi til þess að bókhald fyrirtækisins gaf ranga mynd af viðskiptum og notkun fjármuna fyrirtækisins.

Tveir með brotaferil

Annar er ákærður fyrir að hafa sem forsvarsmaður fyrir félagið Menn og verk (nú afskráð) átt hlutdeild í skattalagabrotum Lúthers og fyrir brot gegn lögum um bókhald eða þar til vara fyrir hlutdeild í bókhaldsbrotinu. Sá sami og annar maður eru síðan ákærðir, sem fyrirsvarsmenn Hornbjargs ehf. (afskráð), fyrir hlutdeild í skattalagabrotum og bókhaldsbroti forsvarsmanns Stapafells með því að gefa út ranga og tilhæfulausa reikninga fyrir hönd Hornbjargs á Stapafell.

Forsvarsmaður fyrir Menn og verk var árið 2020 dæmdur í 14 mánaða fangelsi og til að greiða 96 milljóna króna sekt vegna meiriháttar skatta- og bókhaldslagabrota, sem og peningaþvættis (sjá mbl.is).

Þess má geta að tveir þessara manna eru líka ákærðir í tengdu skatta- og bókhaldslagabroti, en þann 28. júní síðastliðinn var þingfest ákæra gegn þeim vegna meintra brota í rekstri Hornbjargs. Snýst málið um meint virðisaukaskattsvik upp á rúmlega 32 milljónir króna.

Einn fimmmenninganna á að baki langan feril brota af öðu tagi en hér um ræðir. Hann var meðal annars sakfelldur fyrir hættulega líkamsárás árið 2013, fyrir þjófnaðarbrot 2021 og fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot árið 2022. Brotaferill hans nær allt aftur til ársins 2009.

Sex tilhæfulausir reikningar frá Fossel

Einn er ákærður sem stjórnarmaður og framkvæmdastjóri hjá Fossel ehf (afskráð) fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngu skattframtali fyrirtækisins gjaldárið 2019, með því að færa til gjalda í skattskilum kostnað á grundvelli sex rangra og tilhæfulausra reikninga frá Hornbjargi, og þannig oftalið rekstrargjöld Fossels um tæplega 25 milljónir króna.

Hann er síðan ákærður fyrir virðisaukaskattsbrot í rekstri Fossels upp á tæplega 8 milljónir króna.

Fimmti maðurinn er ákærður fyrir sambærilegt brot í rekstri HR Bygg sem áður var Parket og smíðar, en er nú gjaldþrota. Hann er sakaður um að hafa fært til gjalda fimm ranga og tilhæfulausa reikninga frá Hornbjargi og oftalið þannig rekstrargjöld um tæplega 17 milljónir króna.

Sá er jafnframt sakaður um virðisaukaskattsbrot í rekstri félagsins upp á rétt tæpar 5 milljónir króna.

Hornbjargsmennirnir tveir eru jafnframt sakaðir um hlutdeild í þessum skattalagabrotum sem stjórnendur hjá Hornbjargi.

Héraðssaksóknari krefst þess að mennirnir fimm verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Síðan segir, varðandi kröfu um atvinnurekstrarbann:

„Þess er einnig krafist að ákærðu verði með vísan til 4. mgr. 262. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku felagi í allt að þrjú ár.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð

Slapp með skrekkinn – Reiddist verulega eftir að aðdáun hans á „saurlífissíðum“ var afhjúpuð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki

Stefán afhjúpar þekkingarleysi ungra Sjálfstæðismanna – Verðlaunuðu látinn mann sem rak einokunarfyrirtæki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand

Þarf ekki að borga fyrrverandi stjúpföður sínum fyrir að taka íbúðina í gegn – Skilnaður setti allt í bál og brand
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“

Landsréttur leggur línurnar – Akureyringur mátti kalla fyrrverandi eiginkonu sína „tussu“ en ekki „svertingjatussu“