Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt mann í 45 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára fyrir að hafa gerst sekur um manndráp af gáleysi þann 21. júní fyrra. Slysið átti sér stað við á hafnarsvæði í Gleðivík á Djúpavogi og komst dómstólinn að þeirri niðurstöðu að maðurinn hafi sýnt af sér „vítavert gáleysi“ þegar hann var að keyra lyftara með fjórum fiskikörum í vinnu sinni og endaði með því að keyra á vegfaranda, erlendan ferðamann á sjötugsaldri, sem kramdist undir göfflum lyftarans og lést af sárum sínum.
Erlendi ferðamaðurinn var staddur á svæðinu að taka myndir og njóta listaverksins Eggin í Gleðivík og taka af þeim myndir. Eiginkona mannsins var viðstödd slysið og bar vitni í málinu auk annars pars.
Maðurinn neitaði sök í málinu og krafðist sýknu á grundvelli þess að hann hefði sýnt af sér þá aðgæslu sem hægt var að ætlast til af honum í ljósi aðstæðna. Ákæra lögreglustjórans á Austurlandi hljóðaði á þá leið að maðurinn hefði ekið vinnutækinu án nægilegrar athygli og að útsýni hans fram fyrir ökutækið hafi að miklu leyti verið takmarkað vegna hinna fjögurra fiskikara sem voru óbundin í staffla á gaffli lyftarans. Þessu hafnaði maðurinn og sagðist hafa haft nægt útsýni og getað séð í gegnum raufar á milli fiskikaranna. „Ég sé í gegnum körin og ég sé mjög vel til hliðar,“ sagði maðurinn fyrir dómi.
Atvikinu lýsti maðurinn þannig.
„Svo bara er ég að fylgjast með og náttúrulega get ekki alveg verið með augun hringinn í kringum mig en er samt að fylgjast eins vel með og ég mögulega get. … Þetta eru einhverjir 15 til 20 metrar sem ég er að keyra og þá finn ég bara smá högg og átta mig ekki alveg strax á því en þetta virtist vera það lítið högg samt sko ..“
Niðurstaða dómstólsin var á þá leið að hann hefði sýnt af sér „vítavert gáleysi“. Fiskikörin hafi verið óbundin á göfflunum og maðurinn hafi ekki ekki gætt þess að halda ökutækinu eins langt til hægri og unnt var með tilliti til umferðar.
Eins og áður segir niðurstaða Héraðsdóms Austurlands 45 daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá var maðurinn dæmdur til að greiða 2.832.408 krónur í sakarkostnað.