fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fréttir

Anna María Jónsdóttir geðlæknir dæmd skaðabótaskyld vegna ummæla um föður


Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd: Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Virtur geðlæknir, Anna María Jónsdóttir, var þann 14. apríl síðastliðinn dæmd skaðabótaskyld  í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot gegn lögum um heilbrigðisstarfsmenn, brot gegn friðhelgi einkalífs, stjórnarskrárbrot og brot gegn mannréttindasáttmála Evrópu, vegna ummæla sem hún lét falla um föður drengs í þremur læknisvottorðum sem hún ritaði fyrir móður drengsins. Var hún dæmd til að greiða föðurnum 700 þúsund krónur í miskabætur og 1 milljón króna í málskostnað.

Þrenn ummæli læknisins sem hún lét falla um föðurinn í læknisvottorðunum voru dæmd dauð og ómerk. Sneru þau að því að maðurinn væri spilafíkill og hann hefði beitt konuna og soninn líkamlegu, tilfinningalegu og andlegu ofbeldi.

Anna hitti aldrei föðurinn og kvaðst sjálf hafa byggt mat sitt á einhliða frásögn móðurinnar. Síðar kom í ljós að ásakanirnar stóðust ekki og fékk faðirinn á endanum fulla forsjá drengsins. Vottorðin notaði móðirin til að vinna gegn umgengni föðurins við drenginn. Fór svo fram í 15 mánuði en faðirinn fékk síðar forsjá yfir drengnum.

Dómari gagnrýndi Önnu fyrir að hafa byggt mat sitt eingöngu á einhliða frásögn móðurinnar. Segir að hún hefði átt að gera þann fyrirvara í læknisvottorðunum að fullyrðingarnar væru byggðar á frásögn móðurinnar og eftir atvikum drengsins en að hún hefði ekki við önnur gögn að styðjast. „Það gerði stefnda ekki heldur fullyrti fullum fetum og fyrirvaralaust að móðir drengsins og hann sjálfur hefðu sætt ofbeldi frá hendi föður drengsins, líkt og stefnda hefði sjálf upplifað það,“ segir orðrétt í dómsniðurstöðunni.

Þá segir ennfremur: „Stefnda hefði auðveldlega getað hagað ofangreindum ummælum sínum með öðrum og varkárari hætti en hún gerði, án þess að skilaboð hennar misstu marks. Hefði stefnda til að mynda getað sagt að samkvæmt því sem skjólstæðingur hennar héldi fram eða segði, þá hefði faðir drengsins beitt bæði hana og drenginn ofbeldi.“

Féllst dómurinn á það með föðurnum að Anna hefði gengið lengra í læknisvottorðum sínum með þessum ummælum um hann en eðlilegt og nauðsynlegt var. Hafi þessi framganga hennar ekki verið í samræmi við 19. grein laga um heilbrigðisstarfsmenn en þar segir:

„Heilbrigðisstarfsmönnum ber að gæta varkárni, nákvæmni og óhlutdrægni við útgáfu vottorða, álitsgerða, faglegra yfirlýsinga og skýrslna og votta það eitt er þeir vita sönnur á og er nauðsynlegt í hverju tilviki.“

Anna María Jónsdóttir er þrautreyndur geðlæknir með mikla starfsreynslu og hefur verið áberandi talsmaður fags síns t.d. á ráðstefnum og í fjölmiðlaviðtölum. Hún sinnir geðlækningum fullorðinna, unglinga og barna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Íris segir erfitt að losna við blankheitahugsun og byrja að spara: „Peningurinn rennur ekkert út, hann myglar ekkert, hann verður þarna og þú getur bara geymt hann“

Íris segir erfitt að losna við blankheitahugsun og byrja að spara: „Peningurinn rennur ekkert út, hann myglar ekkert, hann verður þarna og þú getur bara geymt hann“
Fréttir
Í gær

Níu gistu fangageymslur í nótt

Níu gistu fangageymslur í nótt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá

Látinn eftir fall í Vestari Jökulsá
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Kona sökuð um langvarandi ofbeldi gegn aldraðri móður sinni

Kona sökuð um langvarandi ofbeldi gegn aldraðri móður sinni