fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
Fréttir

Allt í hnút hjá HSÍ: Óeining sögð ríkja um næsta landsliðsþjálfara Íslands

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. apríl 2023 07:34

Guðmundur var rekinn í febrúar en illa gengur að ráða eftirmann hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óeining er sögð ríkja innan Handknattleikssambands Íslands um hver á að verða næsti landsliðsþjálfari karlaliðsins. Guðmundi Guðmundssyni var sagt upp störfum í febrúar eftir dapran árangur á HM í Svíþjóð og Póllandi.

Morgunblaðið greinir frá því í dag að Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, sé efstur á blaði hjá nokkrum forystumönnum HSÍ en aðrir vilji fá erlendan þjálfara. Fullyrt er að sambandið hafi rætt við Snorra, Dag Sigurðsson og Svíann Michael Apelgren en ljóst þyki að hann tekur ekki við liðinu.

Meðal annarra erlendra þjálfara sem nefndir hafa verið til sögunnar eru Christian Berge, fyrrum landsliðsþjálfari Noregs, og er hann sagður efstur á blaði hjá þeim sem horfa til erlends þjálfara. Þá horfi HSÍ einnig til Danans Keld Wilhemsen sem er aðstoðarþjálfari GOG.

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að engar formlegar viðræður hafi farið fram við neinn þjálfara og mun það stafa af því hversu illa gengur að sammælast um nýjan þjálfara liðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið

Eigendur einbýlishúsa óánægðastir með gæludýrafrumvarpið
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Í gær

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur

Segja stefna í óefni vegna vankunnáttu eldri borgara á tölvur
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum

Helga ósátt við Bílastæðasjóð – Fær bílastæðasektir þrátt fyrir P-merki í bílglugganum
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin