Fréttablaðið skýrir frá þessu og hefur eftir Ernu Milunku Kojic, yfirlækni á smitsjúkdómadeild, að einn sjúklingur hafi verið lagður inn á Landspítalann og að óvenjulega stór hópur, tengdur viðkomandi, hafi verið sendur í smitrakningu. Hún hafi leitt til þess að þrír til viðbótar hafi greinst með berkla.
Erna sagði að tilvik sem þessi séu tekin alvarlega og alltaf sé brugðist hratt við. Hún sagði að heimilislæknakerfið hafi verið virkjað til að skima fyrir sýkingum.
Guðrún Aspelund, sóttvarnalæknir, sagði að mikil rakning fari alltaf í gang þegar tilfelli af þessu tagi koma upp. Það tekur langan tíma að staðfesta smit því það þarf að rækta sýni.
Erna sagði að íslenska heilbrigðiskerfið sé mjög vel í stakk búið til að takast á við sjúkdóm eins og berkla.