Landsréttur staðfesti í dag 12 mánaða fangelsisrefsingu yfir eldri karlmanni sem hefur ítrekað verið fundinn sekur um að bera sig við börn.
DV greindi frá málinu árið 2020, en þá sögðust íbúar í Rimahverfi í Grafarvogi ráðalausir vegna framkomu mannsins sem ítrekað hefði berað sig í glugga íbúðar sinnar og fitlað við kynfæri sín. Hafði maðurinn áður hlotið þrjá dóma fyrir samskonar athæfi.
„Ég er til í að gera hvað sem er til að þetta hætti og þess vegna er ég til í að tala við fjölmiðla um málið,“ sagði fjölskyldufaðir í hverfinu í samtali við DV.
Brotaþolar lýstu því fyrir dómi að maðurinn hafi staðið ber að neðan við glugga á heimili sínu og snert á sér kynfærin á meðan hann fylgdist með börnum sem voru að leik eða á ferð fyrir utan heimili hans.
Maðurinn bar því ýmist við að hafa verið nýkominn úr sturtu, á leið á salernið eða að hann hafi verið að gera daglegar íþróttaæfingar sínar.
Þóttu dómara skýringar mannsins ósennilegar og var hann því fundinn sekur um brot gegn sjö brotaþolum á barnsaldri.
Maðurinn var í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 19. október 2021 dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir að hafa berað sig fyrir brotaþolum og sært með því blygðunarsemi þeirra. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem hefur nú staðfest dóminn.
Í dómsorði Héraðsdóms kom fram að maðurinn er fæddur árið 1944, hann er því á 79. ári. Hann hafi þrisvar sinnum áður hlotið dóm fyrir blygðunarsemisbrot og brot gegn barnaverndarlögum, síðast árið 2014. Var tekið fram að mikilvægt væri við fullnustu refsingarinnar að litið væri til stöðu mannsins og hann fengi þá heilbrigðisþjónustu sem hann þarf á að halda.