fbpx
Þriðjudagur 23.desember 2025
Fréttir

Gleðitíðindi frá Tenerife – Drífa Björk og fjölskylda hennar fá jarðneskar leifar Haraldar afhentar

Ritstjórn DV
Föstudaginn 5. ágúst 2022 12:33

Drífa Björk og Haraldur Logi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnakonan Drífa Björk Linn­et Kristjáns­dótt­ir, ekkja Har­ald­ar Loga Hrafn­kels­son­ar sem lést í hræðilegu slysi á Tenerife þann 6. febrúar, greinir frá þeim gleðitíðindum að yfirvöld á eyjunni ætli loks að afhenda fjölskyldunni lík Haraldar.

„Við erum smá að fagna. Við erum bún­ar að fá frétt­ir um það að við erum að fara að fá Halla til okk­ar. Ég var á fundi í morg­un og aft­ur núna seinnipart­inn með út­far­arþjón­ustu og það lít­ur allt út fyr­ir að við get­um fengið Halla til okk­ar,“ seg­ir Drífa Björk í færslu á Instagram-síðu sinni.

Á næstu dögum muni lík eiginmanns hennar verða brennt ytra og í fram­hald­inu verði líkamsleifarnar fluttar til Íslands.

„Þeir ætla sem sagt af mannúðarástæðum að af­henda hann þrátt fyr­ir að mál­inu sé ekki lokið. Þeir eru ennþá að reyna að finna upp­tök elds­ins. Við fjöl­skyld­an erum búin að vera nán­ast á tröpp­un­um hjá lög­regl­unni,“ seg­ir Drífa Björk. Að hennar sögn verði skrifað á dánarvottorðið að Haraldur Logi hafi látist af slysförum jafnvel þó að endanleg niðurstaða liggi ekki fyrir.

DV og fleiri miðlar greindu frá því í júlílok að Drífa Björk og fjölskylda hennar hefðu gengið í gegnum mikla erfiðleika í glímunni við yfirvöld ytra. Hún opnaði sig um atburðarásina þennan örlagríka dag.

„Hvaðan kom eldurinn ef Halli kveikti ekki í sjálfur, né einhver annar? Getur það verið vindill eða ofhitnaði bíllinn? Þeir eru einfaldlega ekki búnir enn að átta sig á því og því er málið enn til rannsóknar. 

Búið er að rannsaka lifrina í honum til að athuga hvort honum hafi verið byrlað í drykk á einhverjum stað því þá hefði verið hægt að draga viðkomandi til saka og hægt væri að kenna viðkomandi um að Halli hafi ekki vaknað við eldinn. En það fannst ekkert í lifrinni… annað en dass af rauðvíni hjá okkar manni enda vorum við í afmæli hjá góðum vini okkar um kvöldið og ekkert óeðlilegt við það. 

Öryggismyndavélar voru skoðaðar, bæði sem eru alls staðar á húsinu okkar og í götunni okkar, og þar sést mjög greinilega að Halli kom einn heim seint um nóttina, lyklalaus og vildi sennilega ekki vekja okkur og hann sest inn í bíl, ræsir vélina, kemur sér fyrir í sætinu og leggur sig. 

20 mínútum síðar fer hann að húsinu til að athuga hvort einhver sé vaknaður en allir eru sofandi svo hann sest aftur inn í bílinn og sofnar. Tæplega 2 klukkustundum seinna byrjar reykur að koma frá bílnum, svo eldur og síðan sprenging og þá vöknum við öll og martröðin hefst sem við erum enn í.“ 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Salah hetja Egyptalands
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Hafnarfjarðarmálið: Lífsýni mannsins fannst á fatnaði drengsins

Hafnarfjarðarmálið: Lífsýni mannsins fannst á fatnaði drengsins
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Landsréttur vísar máli Sendinefndar ESB gegn Tómasi Hilmari frá – „Þetta er gríðarlegur léttir“

Landsréttur vísar máli Sendinefndar ESB gegn Tómasi Hilmari frá – „Þetta er gríðarlegur léttir“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“

„Ekkert er sárara í veröldinni en að missa barn og það getur enginn skilið nema að upplifa það“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“

Vill að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra – „Þarna var um að ræða svívirðilega aðför“
Fréttir
Í gær

Eyjólfur Ármannsson í feðraorlof – Inga leysir af

Eyjólfur Ármannsson í feðraorlof – Inga leysir af
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Keyptu splunkunýtt parhús sem reyndist svo verulega gallað – Leki og mygla komu upp fljótlega eftir afhendingu

Keyptu splunkunýtt parhús sem reyndist svo verulega gallað – Leki og mygla komu upp fljótlega eftir afhendingu