fbpx
Mánudagur 11.ágúst 2025
Fréttir

Lögmaður föður drengsins sem var fjarlægður af Barnaspítalanum – „Þeir feðgar glaðir að fá að verja loks tíma saman“

Erla Hlynsdóttir
Fimmtudaginn 30. júní 2022 17:01

Lögreglubíll við spítalann þegar aðfarargerðin fór fram. Fréttablaðið/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögmaður föður tíu ára drengs sem tekinn var úr lyfjagjöf á Barnaspítala Hringsins í byrjun mánaðarins og færður föður sínum, gegn vilja barnsins, segir að drengnum líði vel og að þeir feðgar séu glaðir að vera loksins saman.

DV greindi frá því fyrr í vikunni að drengurinn hafi ekki hitt móður sína frá því hann var færður frá spítalanum af lögreglu og fulltrúa sýslumanns þann.

Mikill viðbúnaður var við Barnaspítalann þann 2. júní vegna aðfarargerðar til að uppfylla umgengnisrétt föður.

Sjá einnig: Fær ekki að hitta son sinn sem var tekinn af henni á Barnaspítalanum fyrr en í október

Um var að ræða sjö klukkustunda aðgerð þar sem byrgt var fyrir glugga á spítalanum, umferð á göngum stöðvuð og heyra mátti öskur í drengnum sem mótmælti því að fara til föður síns. Á staðnum kom einnig til háværra orðaskipta milli þeirra sem stóðu að aðfarargerðinni og svo aðstandenda barnsins.

Þá hefur Landspítalinn óskað eftir fundi með sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerðarinnar.

Samkvæmt nýjum dómi Landsréttar fær drengurinn næst að hitta móður sína í október.

Upphaflega dæmdi héraðsdómur móður fulla forsjá yfir báðum börnum þeirra, 10 ára dreng og 14 ára stúlku. Umgengni drengsins við föður átti að vera takmörkuð og drengurinn mátti ekki að gista hjá honum en engin umgengi átti að vera milli dóttur og föður.

Úr dómsorði héraðsdóms.

Samkvæmt dómi Landsréttar skal umgengni dóttir og föður hefjast í júlímánuði, þrátt fyrir að dóttirin hafi andmælt því að hitta föður.

Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður föður, segir í skriflegu svari til DV að úrlausnir dómstóla vegna ágreinings móður og föður tali sínu máli.

Umbj. minn ber hagsmuni barna sinna fyrir brjósti sér og vill ekki ræða viðkvæm persónuleg málefni þeirra eða eldri bróður þeirra í fjölmiðlum. Þess má þó geta að drengnum líður mjög vel og þeir feðgar glaðir að fá að verja loks tíma saman. Telur umbj. minn að almenningur hljóti að átta sig á því að frásögn konunnar, og þeirra sem tala hennar máli í fjölmiðlum, er ekki rétt enda væru niðurstöður dómsmála aðila ekki þær sem þær eru ef svo væri. Þá eru líklega fáir sem trúa því að hlutlausir sálfræðingar, sérfræðingar og dómarar sem að málunum hafa komið séu ekki starfi sínu vaxnir eins og að er látið liggja og jafnvel fullyrt. Vildi hann óska þess að konan einbeitti sér frekar að því að bæta samskipti aðila og finna farsæla lausn fyrir börn þeirra heldur en að stuðla daglega að umfjöllun um málefni  þeirra á vefmiðlum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt

Vöknuðu upp við vondan draum – Vissu ekki að nýtt fjölbýlishús ætti að vera svona nálægt
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs

Nágrannaerjur í Vesturbænum – Fá ekki að losna við girðingu nágrannanna sem vísa til brunahættu og óþefs
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?

Vilhjálmur segir að þessi aðgerð geti lækkað vexti á Íslandi hratt – Hafa stjórnvöld kjarkinn?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum

Hlutfallslega miklu fleiri erlendir ríkisborgarar á Íslandi en öðrum Norðurlöndum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum

Íslenskir neytendur óskuðu eftir endurgreiðslu vegna flugs – Áttuðu sig síðan á þessum mistökum
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar

Lögreglan rifjar upp rán í Útvegsbanka árið 1975 – Einn ræningjanna létti á samvisku sinni í sumar