fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fréttir

Segir að Hæstiréttur Bandaríkjanna muni samþykkja afnám réttinda kvenna til þungunarrofs

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 3. maí 2022 03:26

10 vikna fóstur. Mynd:Wikimedia Commons

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú eru tæplega fimmtíu ár síðan Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað upp tímamótadóm sinn í máli Roe vs Wade en sá dómur tryggði bandarískum konum rétt þungunarrofs. En nú stefnir í breytingu þar á að sögn Politico sem hefur komist yfir skjal frá Hæstarétti.

Segir miðillinn að í fyrstu atkvæðagreiðslu réttarins hafi hann samþykkt að hvert og eitt ríki landsins geti sett eigin lög sem takmarka réttinn til þungunarrofs. Um er að ræða frumatkvæðagreiðslu dómaranna og byggir skjalið á samþykkt meirihlutans. Það er í raun uppkast að niðurstöðu réttarins í málinu. Færir meirihlutinn þar rök fyrir því að afnema eigi réttinn til þungunarrofs.

CNN segir að skjalið sé ófalsað.

Politico bendir á að ákvörðunin sé ekki endanleg og að dómararnir geti skipt um skoðun þar til skömmu áður en rétturinn skilar lokaniðurstöðu sinni. Slíkt hefur gerst í gegnum tíðina. Segir miðillinn að rétturinn muni birta endanlega niðurstöðu sína innan tveggja mánaða.

Skjalið er frá 10. febrúar og ekki er útilokað að breytingar hafi verið gerðar á því síðan að sögn Politico.

Ef það sem kemur fram í skjalinu verður niðurstaða Hæstaréttar hefur það í för með sér mikla breytingu á réttindum kvenna því eins og áður sagði mun hún afnema niðurstöðu réttarins frá 1973 í máli Roe vs Wade sem tryggði konum rétt til þungunarrofs.

Níu dómarar sitja í Hæstarétti. Sex þeirra voru tilnefndir af forsetum úr röðum Repúblikana og þrír af forsetum úr röðum Demókrata.  Þetta þýðir að íhaldssamir dómarar eru í meirihluta í réttinum.

Politico hefur eftir heimildarmanni, sem þekkir til atkvæðagreiðslu réttarins, að fimm af íhaldssömu dómurunum hafi greitt atkvæði með að breyta niðurstöðu Roe vs Wade. John Roberts, sem er forseti réttarins, greiddi ekki atkvæði með þessari niðurstöðu en hann kemur einnig úr röðum íhaldssamra dómara.

Mörg ríki Bandaríkjanna hafa á undanförnum árum samþykkt lög sem þrengja að réttindum kvenna til þungunarrofs. Þeirra á meðal eru Oklahoma, Texas og Mississippi sem hafa sett lög sem heimila aðeins þungunarrof mjög snemma á meðgöngunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar

Mannslát á Kársnesi: Gæsluvarðhald framlengt til 13. janúar
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”

Björn Leví lætur gamlan kollega heyra það – „Það væri fínt að losna við hann úr þinginu”
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur

Hjón réðust til atlögu við annan af hryðjuverkamönnum á Bondi-strönd en lifðu það ekki af – Hyllt sem hetjur
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Halldór Blöndal er látinn

Halldór Blöndal er látinn
Fréttir
Í gær

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“

Manuela Ósk svarar Helenu – „Í flestum tilfellum farið með hreinar rangfærslur“
Fréttir
Í gær

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu

Hetjan í Ástralíu rýfur þögnina – Meiðslin miklu alvarlegri en talið var í fyrstu
Fréttir
Í gær

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“

Safnað fyrir Gunnar Inga sem á langt bataferli framundan – „Fyrir algjört kraftaverk var lífi hans bjargað“
Fréttir
Í gær

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast

Verðkönnun á jólakjöti – Sjáðu hvar það er ódýrast og hvar það er dýrast