fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

„Ég svaf allar nætur í fötunum með hníf undir koddanum og skó tilbúna við allar útgönguleiðir“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 3. mars 2022 16:30

Tinna Helgadóttir. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tinna Helgadóttir, stofnmeðlimur Skjóls og frambjóðandi Pírata til borgarstjórnarkosninga, skrifar um reynslu sína af lögreglunni þegar hún leitaði til hennar vegna heimilisofbeldis og umsáturs í pistli á Vísi.

„Þegar sambandsslit ganga vel eru þau samt erfið. Þegar þau ganga illa og annar aðilinn fæst jafnvel ekki til að hætta ógnandi samskiptum verða þau að martröð. Þá verðum við að treysta á aðstoð lögreglu og dómskerfisins. En hvað ef kerfið segir nei?“ Spyr Tinna og segir að hennar reynslusaga við slíkar aðstæður valdi henni enn miklu hugarangri.

„Heimilið var alls ekki sá griðarstaður sem það ætti að vera og endaði eitt umsátrið á því að lögreglan var kölluð til. Í mikilli geðshræringu hitti ég þá lögreglukonu sem sýndi mér skilning og útskýrði fyrir mér hver næstu skref væru ef viðkomandi léti ekki af þessari hegðun. Þessi mannlega nálgun og skilningur gaf mér styrk og von. Viku síðar kom hann aftur.“

Tinna ákvað að leggja fram kæru en viðmótið sem hún fékk hjá lögreglukonunni var að hennar mati ekki í samræmi við tilefnið. Segist hún hafa mætt algjöru skilningsleysi og alla mannlega nálgun skorti.

„Styrkurinn og vonin vék fyrir vanmætti og vonleysi. Lögreglan aðhafðist ekkert þrátt fyrir að ég óttaðist um líf mitt og tjáði þeim það,“ segir hún.

Tinna Helgadóttir. Aðsend mynd.

Fór með höfuðið hátt inn, en óörugg út

„Ég fór inn á lögreglustöðina viss um aðstoð, ætlaði mér að kæra til að standa með mér og öllum öðrum sem hafa þurft að glíma við sömu lífsreynslu. Ég fór þaðan út skömmu seinna, hreinlega neitað um að leggja fram kæru, hlegið að áhyggjum mínum, aðstoðin engin og óöryggið algjört. Hér brást kerfið mér! Þetta tímabil er í móðu, en ég svaf allar nætur í fötunum með hníf undir koddanum og skó tilbúna við allar útgönguleiðir til að geta komist fljótt út af heimilinu,“ segir Tinna og bætir við að fyrir vikið búist hún ekki við því að leita til lögreglu aftur þar sem „mér er ljóst að þangað er ekki neina hjálp að sækja.“

Tinna endaði með að fá aðstoð í Kvennaathvarfinu þegar lögreglan og kerfið brást henni. „Ef ekki hefði verið fyrir Kvennaathvarið veit ég ekki hvar ég væri í dag,“ segir hún.

Reynsla hennar er reynsla annarra

Tinna segir að reynsla hennar af lögreglu kristalli mikilvægi framkomu lögreglu við þolendur:

„Þegar þolandi kemur til lögreglu á því sem er líklega versti tími lífs síns, er nauðsynlegt að fá upplýsingar um hvað kemur til greina, hvað er hægt að gera og hverju þolandi má búast við. Lögregluþjónar sem taka á móti slíkum málum þurfa að hafa viðeigandi þjálfun sem nýtist til að skilja þolendur. Ef ekki fæst lögregluþjónn með þessa þjálfun og skilning á hvaða áhrif áföll hafa, þá er nauðsynlegt að hafa sálfræðinga með í öllum bókunum og skýrslutökum þar sem þeirra eina starf er að gæta hagsmuna þolanda. Fyrir þolendur sem hafa nýlega orðið fyrir áfalli getur framkoma eins og sú sem ég fékk leitt til dýpri sára sem taka langan tíma að gróa, ef þau gera það yfir höfuð. Hvaða áhrif hefur það á samfélagið okkar ef þolendur fá skilaboðin að þeir sem eiga að vernda okkur er sama um hvort við lifum eða deyjum.“

Hlutfall sakfellinga

Tinna ber saman hlutfall brota og sakfellingarhlutfall og vísar í ársskýrslur Stígamóta, að 13 prósent af málum sem fara fyrir dóm endi með sakfellingu og þá er búið að fella niður stóran hluta af málum sem teljast ekki líkleg til sakfellingar. Hún segir að það sé ekki skrítið að stór hluti þjóðarinnar treysti ekki lögreglunni þegar hlutfallið er þetta.

„Af hverju ættum við svo sem að fara og tilkynna málin okkar bara til að láta hlæja upp í opið geðið á okkur? Myndir þú opna þig við manneskju í valdastöðu í samfélaginu á dýpstu og erfiðustu stundir lífs þíns ef þú vissir að von væri á þeim viðbrögðum?“

Þú getur lesið allan pistill Tinnu í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar