fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Fréttir

Mikil aukning á tilkynningum um heimilisofbeldi síðustu tvö ár – 80% gerenda eru karlkyns

Ritstjórn DV
Mánudaginn 28. mars 2022 10:06

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi tilvika heimilisofbeldis sem tilkynnt eru til lögreglu hefur aldrei verið meiri en undanfarin tvö ár í samanburði við síðustu sex ár þar á undan. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í tilefni af skýrslu um heimilisofbeldi sem nú hefur verið gefin út. Í henni er að finna helstu tölur er snúa að heimilisofbeldismálum og ágreiningsmálum milli skyldra eða tengdra einstaklinga sem koma á borð lögreglu.

Þá kemur fram að tilvik ársins 2021 voru þriðjungi fleiri en árið 2015.  Þá voru ágreiningsmál um 1.000 talsins árið 2014 og einnig á tímabilinu 2018-2021 en færri árin 2015 og 2016 þegar þau voru um 850-900 talsins.

Fram kemur að markmið stjórnvalda séað hlutfall þeirra sem verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi lækki og að hlutfall brotaþola sem tilkynni það til lögreglu verði 25% árið 2023. Í þolendakönnun lögreglunnar á síðustu árum hafa á bilinu 7-20% svarenda tilkynnt ofbeldi af hendi maka/fyrrum maka til lögreglu.

Í verklagsreglum lögreglu er heimilisofbeldi skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi einhvers nákomins. Með öðrum orðum eru gerandi og þolandi skyldir eða tengdir og háttsemin felur í sér brot sem beinist gegn þolanda, t.d. ofbeldi, hótun eða eignaspjöll. Hins vegar eru tilvik skráð sem ágreiningur milli skyldra og tengdra þegar ekki leikur grunur á broti sem beinist að þolanda. Í lok árs 2014 voru verklagsreglur lögreglu um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála  uppfærðar, sem leiddi til mun markvissari skráningar og skýrist mikill munur milli áranna 2014 og 2015, um 370 tilvik, af þessari breytingu.

80% gerenda eru karlkyns

Þegar litið er til kyns þolenda í öllum heimilisofbeldismálum, þ.e. ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi af hendi aðila tengdum fjölskylduböndum, má sjá að um 70% þolenda eru kvenkyns og um 80% gerenda karlkyns. Hins vegar þegar eingöngu er litið til ofbeldis maka/fyrrverandi maka, má sjá að hærra hlutfall þolenda er konur, eða 75-80%, en gerendur eru í 80-83% tilvika karlar.

 

Árið 2016 var sett í lög grein 218b í almennum hegningarlögum nr. 19/1940. Greinin nær yfir brot sem eru þess eðlis að vera endurtekin eða alvarleg og þar sem um er að ræða tengsl á milli geranda og þolanda. Brotin voru 48 árið 2016 og fóru mest upp í 100 brot árin 2019 og 2020. Árið 2021 voru þau 89 talsins.

Fjölskyldutengsl eða náin tengsl milli gerenda og þolenda í helmingi manndrápsmála

Í skýrslunni er jafnframt að finna yfirlit yfir manndrápsmál á árunum 2010-2020 og tengsl hins látna og geranda, auk upplýsinga um aldur og kyn gerenda og þolenda. Í rúmum helmingi tilvika var um að ræða fjölskyldutengsl eða náin tengsl milli gerenda og þolenda en ofbeldi af hendi maka eða fyrrverandi maka getur stigmagnast eftir því sem tíminn líður og í slíkum aðstæðum getur í einhverjum tilvikum mannslíf verið í húfi.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði