fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
Fréttir

Sprotinn Treble fær 1,2 milljarða króna í fjármögnun

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 6. desember 2022 10:54

Jesper Pedersen, stofnandi og rekstrarstjóri Treble, Ingimar Andersen meðstofnandi og tæknistjóri, Finnur Pind stofnandi og framkvæmdarstjóri og Gunnar Pétur Hauksson meðstofnandi og stjórnandi viðskiptasviðs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sprotafyrirtækið Treble Technologies, sem þróar tækni til hljóðhönnunar, hefur safnað 8 milljónum evra eða að jafnvirði 1,2 milljarða króna. Þar af koma 5,5 milljónir evra frá fjárfestum og 2,5 milljónir evra er styrkur frá Evrópska nýsköpunarráðinu (European Innovation Council). Tæknin sem fyrirtækið þróar gerbyltir því hvernig hægt er að hanna hljóð og skapa hljóðupplifanir á breiðu sviði.

Frumtak leiddi fjármögnunarlotuna sem er á klakstigi (e. seed stage) í samstarfi við NOVA sem er nýsköpunararmur Saint-Gobain, sem er eitt af 500 stærstu fyrirtækjum heims og framleiðir byggingarefni, auk ýmissa englafjárfesta.

Treble þróar hugbúnað á sviði hljóðhermunar (e. sound simulation). Hann greinir og hannar hljóð í hverskyns þrívíddarmódelum og hefur því notagildi m.a. við hönnun bygginga, bíla, hljóðtæknibúnaðar og sýndarheima (e. metaverse). Tæknin, sem er einkaleyfisvarin, gerir notendum kleift að herma hljóð mun hraðar og nákvæmar en áður hefur verið hægt.

Tækni Treble getur nýst fjölmörgum atvinnugreinum. Fyrirtækið á þegar í samstarfi við fjölda fyrirtækja um allan heim sem nota tæknina, svo sem nokkur af stærstu tæknifyrirtækjum í heimi, stóra bílaframleiðendur og þekktar arkitektastofur s.s. Henning Larsen Architects, BIG Architects og verkfræðistofuna COWI. Þessi fyrirtæki eiga það öll sameiginlegt að hafa átt í erfiðleikum með að vinna með hljóð og sjá sér mikinn hag í að nota hljóðhermunartækni Treble.

„Á einungis tveimur árum hefur Treble tekist að þróa byltingakennda tækni og hafið samstarf við leiðandi tæknifyrirtæki á heimsvísu. Fjármögnunin gefur okkur færi á að hleypa af stokkunum tæknilausninni og efla hana. Stefnt er á að setja hana formlega í loftið snemma á næstu ári og fjölga starfsmönnum. Fólk áttar sig oft ekki á því áreiti sem hljóð skapar en rannsóknir sýna að það hefur mikil áhrif á heilsu okkar, framleiðni og getu okkar til að eiga samskipti. Tæknin okkar mun leiða til þess að heimurinn – hvort sem litið er til raunheima eða þess stafræna – muni hljóma betur og vera minna plagaður af hávaða. Hljóð er afar mikilvægt fyrir upplifun í sýndarheimum, en rannsóknir hafa sýnt að aukin hljómgæði þar hafa mikil áhrif á upplifun fólks, jafnvel meir en aukning í bættri grafík gefur. Treble stefnir á að leika stórt hlutverk í þróun hljóðs á þeim vettvangi,“ segir Dr. Finnur Pind, stofnandi og framkvæmdastjóri Treble.

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Frumtaki Ventures: „Okkur þykir tæknin sem Treble hefur þróað á skömmum tíma stórbrotin og mikill uppgangur fyrirtækisins á þessum stutta tíma afar eftirtektarverður. Við hlökkum til að styðja við frekari vöxt félagsins og útbreiðslu tækninnar sem getur nýst á fjöldamörgum sviðum. Mikilvægi góðrar hljóðhönnunar og hljóðvistar hefur verið vanmetið og tækilausnir á þessu sviði vantað. Möguleikar Treble eru gífurlegir og félagið er í lykilstöðu til að verða leiðandi á þessu sviði á heimsvísu.“

Treble Technologies hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar á stórum alþjóðlegum ráðstefnum. Á frumkvöðlaráðstefnunni Slush í Helsinski sem haldin var fyrir skemmstu vann Treble verðlaun fyrir bestu fjárfestakynningu Norður- og Eystrasaltslanda (New Nordic Pitch Competition). Á byggingaráðstefnunni BIM World Munich í fyrra hreppti fyrirtækið verðlaun fyrir bestu nýsköpunina í byggingariðnaði. Treble hlaut svo einnig verðlaunin Best New Tech á AEC Hackathon viðburðinum í Kaupmannahöfn í fyrra. Þá hefur félagið fengið styrki frá Tækniþróunarsjó

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Garner aftur til United?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“