fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Segja Önnu Dóru hafa verið vandamálið – Formlega sökuð um einelti gegn framkvæmdastjóranum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 28. september 2022 14:21

Sigrún Valbergsdóttir. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrún Valbergsdóttir, núverandi forseti Ferðafélags Íslands (FÍ)- eftir að Anna Dóra Sæþórsdóttir sagði af sér í gær, sendi bréf fyrir hönd stjórnar FÍ á félagsmenn í dag eftir fréttir gærdagsins. Vísir greinir frá bréfinu.

Anna Dóra sendi frá sér harðorða yfirlýsingu í gær, samhliða afsögn sinni, þar sem hún bar stjórn FÍ þungum sökum og sagði afsögn sína mega rekja til vissrar gerendameðvirkni með aðilum sem bornir hafa verið þungum sökum, sem og vegna viðbragða stjórna við umleitan Önnu að skoða rekstrarmál félagsins.

Sigrún segir í bréfi sínu að félagsmenn FÍ hafi aldrei verið fleiri og starfsemin hafi verið í miklum blóma undanfarið en þó hafi skuggi hvílt yfir starfi stjórnar undanfarið ár vegna alvarlegs samskiptavanda milli Önnu Dóru og stjórnarfólks annars vegar og milli Önnu Dóru og framkvæmdastjórans, Páls Guðmundssonar.

Hingað til hafi félagsmönnum verið hlíft við þessum vandamálum en eftir atburði gærdagsins sé ljóst að skýra þurfi betur frá málinu. Vandamálin megi rekja til þess að Anna Dóra hafi beitt ólýðræðislegum vinnubrögðum, svo sem að ætla sér einhliða að skipta út framkvæmdastjóra.

„Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta og mikilvæg mál ekki borin undir stjórn eins og vera ber. Stærsti ásteytingarsteinninn var þegar forseti vildi einhliða skipta út framkvæmdastjóra okkar, Páli Guðmundssyni, án þess að fyrir því lægju málefnalegar ástæður og engin formleg tillaga um slíkt hefði verið borin undir stjórn.“

Hún hafi engu að síður hafið viðræður við Pál um starfslok hans og í framhaldi hafi tekið við erfitt tímabil þar sem framkoma Önnu Dóru gagnvart framkvæmdastjóra hafi gert honum erfitt að sinna sínu starfi.

Páll hafi meðal annars lagt fram formlega kvörtun um einelti og var leitað til utanaðkomandi sérfræðinga vegna málsins.

„Forseti kom einnig með athugasemdir við það hvernig haldið hefði verið á málum sem upp hafa komið innan félagsins í samskiptum einstaklinga, og varða m.a. kynferðislegar áreitni. Gagnrýndi hún ýmist að framkvæmdastjóri hefði eytt of miklum tíma í að sinna þeim málum eða að of lítið væri gert.“

Alls hafi sex ár komið upp á fimm árum hjá FÍ varðandi kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi eða einelti og öllum málum nema einu sé lokið og það sem eftir standi sé í skoðun hjá faglegum utanaðkomandi aðila.

FÍ sé með viðbragðsáætlun vegna áreitnismála og hafi þessum fimm málum lokið með sátt milli aðila, skriflegri áminningu, tiltali og tilfærslu í starfi eða samstarfi var hætt eða það ekki endurnýjað.

Allt þetta ár hafi verið leitað leiða til að bæta samskiptavandamál við Önnu Dóru en það hafi ekki tekist.

„Stjórnin mun engu að síður halda áfram að leita leiða til þess að tryggja frið um starfsemi félagsins og verða þessi mál tekin til umræðu á næsta aðalfundi þess.“

Yfirlýsingin í heild sinni

Kæri félagi í Ferðafélagi Íslands,

Starfsemi Ferðafélags Íslands hefur verið í miklum blóma undanfarin ár, félagsmenn hafa aldrei verið fleiri, félagsstarfið öflugt og fjárhagurinn sterkur. Undanfarið ár hefur hins vegar hvílt skuggi yfir starfi stjórnar félagsins vegna alvarlegs samskiptavanda á milli forseta og stjórnarfólks annars vegar og forseta og framkvæmdastjóra hins vegar.

Fram til þessa hefur stjórnin talið rétt að greina félagsfólki ekki frá þessum vandamálum í þeirri von að þau væri hægt að leysa með farsælum hætti og með hagsmuni félagsins að leiðarljósi. Því miður er ljóst eftir tilkynningu Önnu Dóru Sæþórsdóttur, um að hún segði af sér sem forseti Ferðafélags Íslands, að svo verður ekki. Stjórn Ferðafélagsins telur rétt að bregðast við þessu með því að upplýsa félaga um aðdraganda afsagnar forseta.

Í kjölfar þess að Anna Dóra var kosin forseti var ljóst að henni fylgdi kraftur og áhugi á að setja mark sitt á starfsemi félagsins. Naut hún í upphafi stuðnings og trausts allra í stjórn. Meðal annars var ráðist í stefnumótunarvinnu fyrir Ferðafélag Íslands til næstu fimm ára, verklagsreglur um góða stjórnarhætti endurbættar og verkferlar er snerta einelti, kynferðislega eða kynbundna áreitni og ofbeldi uppfærðir.

Fljótlega tók að bera á ólýðræðislegum vinnubrögðum forseta og mikilvæg mál ekki borin undir stjórn eins og vera ber. Stærsti ásteytingarsteinninn var þegar forseti vildi einhliða skipta út framkvæmdastjóra okkar, Páli Guðmundssyni, án þess að fyrir því lægju málefnalegar ástæður og engin formleg tillaga um slíkt hefði verið borin undir stjórn. Án samráðs ákvað forseti engu að síður að hefja viðræður um starfslok við framkvæmdastjórann og það án vitundar stjórnar. Þegar stjórnin komst að því, og lýsti sig ósammála, urðu öll samskipti við forseta mjög erfið. Í framhaldi tók við tímabil þar sem framkoma forseta gagnvart framkvæmdastjóra gerði honum erfitt að sinna starfi sínu.

Í byrjun júní sl., á háannatíma félagsins, varð stjórn ljóst að ekki yrði búið við óbreytt ástand, enda hagsmunir félagsins í húfi. Stjórn lagði því fram tillögu við forseta þar sem óskað var eftir því að hún héldi sig til hlés um stundarsakir á meðan leitast væri við að leysa samskiptavandann. Forseti hafnaði því líkt og tillögu stjórnar um að leita til utanaðkomandi ráðgjafa til að bæta samskiptin.

Á sama tíma hafði framkvæmdastjóri lagt fram formlega kvörtun vegna eineltis af hálfu forseta og voru nýuppfærðar verklagsreglur Ferðafélagsins í eineltismálum því virkjaðar og leitað aðstoðar utanaðkomandi sérfræðinga. Í kjölfar þess barst stjórn tölvupóstur frá forseta með ávirðingum um að rekstur félagsins væri í ólestri. Þessar fullyrðingar voru alveg á skjön við ræðu forseta á aðalfundi í mars sl. og ársskýrslu stjórnar sem samþykkt var á sama fundi, en þar kom einmitt fram að rekstur félagsins stæði einstaklega vel. Til þess að bregðast við þessum athugasemdum forseta ákvað stjórn að fá álit endurskoðanda sem staðfesti að reksturinn væri traustur og fjárhagsstaða sterk og þau gögn lögð fyrir á stjórnarfundi þann 28. júní sl.

Forseti kom einnig með athugasemdir við það hvernig haldið hefði verið á málum sem upp hafa komið innan félagsins í samskiptum einstaklinga, og varða m.a. kynferðislegar áreitni. Gagnrýndi hún ýmist að framkvæmdastjóri hefði eytt of miklum tíma í að sinna þeim málum eða að of lítið væri gert. Á sama stjórnarfundi var því lögð fram greinargerð um hvernig tekið hefði verið á slíkum málum hjá félaginu undanfarin fimm ár. Þar kom m.a. fram:

„Alls hafa komið upp sex mál á sl. fimm árum hjá Ferðafélagi Íslands sem varða kynferðislega áreitni, kynbundið ofbeldi eða einelti. Öllum málunum er lokið nema eitt er í skoðun hjá faglegum utanaðkomandi aðila. Málin voru ýmist leyst með sátt á milli aðila, afsögn, skriflegri áminningu, tiltali og tilfærslu í starfi eða samstarfi var hætt eða það ekki endurnýjað. Af þessum sex málum voru fjögur á vettvangi félagsins og tvö utan starfsemi félagsins.

Ferðafélag Íslands er með viðbragðsáætlun vegna áreitnismála og er hún hluti af stjórnkerfi félagsins og er virkjuð ef mál eru tilkynnt til félagsins.“

Allt þetta ár hefur stjórn Ferðafélagsins leitað allra leiða til að leiða þessi samskiptamál við forseta til lykta með farsælum hætti fyrir félagið. Okkur þykir miður að það tókst ekki. Stjórnin mun engu að síður halda áfram að leita leiða til þess að tryggja frið um starfsemi félagsins og verða þessi mál tekin til umræðu á næsta aðalfundi þess.

Í stóru félagi eins og FÍ geta komið upp ýmis álitamál í samskiptum einstaklinga og í þeim tilvikum sem borist hafa kvartanir hefur verið tekist á við þær með faglegum hætti og í samræmi við viðbragðsáætlun.

Stjórn Ferðafélags Íslands er skipuð fjölbreyttum hópi sjálfboðaliða úr ólíkum áttum, bæði konum og körlum. Það er ósk okkar að blómleg starfsemi FÍ fái áfram að vaxa og dafna með sameinuðum kröftum okkar allra.

Virðingarfyllst

Reykjavík, 28. september 2022.

Fyrir hönd stjórnar Ferðafélags Íslands,

Sigrún Valbergsdóttir forseti

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Í gær

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun

Mætti tveimur rottum í Skeiðarvoginum í morgun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis