fbpx
Sunnudagur 04.maí 2025
Fréttir

Tæpur þriðjungur brotaþola hafa orðið fyrir stafrænu kynferðisofbeldi

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 30. ágúst 2022 10:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árið 2021 leituðu 952 einstaklingar til Stígamóta sem brotaþolar kynferðisofbeldis. Þar af voru 465 að koma á Stígamót í fyrsta skipti, en þetta er mesti fjöldi nýrra brotaþola í ráðgjöf á einu ári. Þó biðu 200 einstaklingar á biðlista eftir viðtali í lok ársins. Heildarfjöldi viðtala var 3.381 á árinu og hefur ekki verið meiri frá stofnun Stígamóta. Þetta kemur fram í nýútkominni árskýrslu Stígamóta.

Jafnframt sótti metfjöldi aðstandenda viðtöl eða 96 aðilar. Gera má ráð fyrir að þessi aukna aðsókn í þjónustuna komi í kjölfar nýrrar #MeToo bylgju sem fór af stað vorið 2021, en þá varð mikil vakning meðal þolenda um að skila skömminni, leita sér aðstoðar og vinna úr afleiðingum ofbeldisins.

Mikil aukning þolenda sem urðu fyrir stafrænu kynferðisofbeldi

Langflest þeirra sem leituðu til Stígamóta á árinu komu vegna nauðgana, eða 67,3%. Þá leituðu 54,4% til Stígamóta vegna kynferðislegrar áreitni og 33,3% vegna sifjaspella. Athygli vekur að mun fleiri nefna stafrænt kynferðisofbeldi sem ástæðu komu en áður, en það hlutfall fór úr 8,6% í 21,3% á einu ári.

Í gagnasöfnun Stígamóta er ekki aðeins spurt um ástæðu komu heldur einnig spurt nánar út í mismunandi tegundir ofbeldis sem brotaþoli kann að hafa orðið fyrir á lífsleiðinni. Þar kemur í ljós að 28% þeirra brotaþola sem leituðu til Stígamóta í fyrra höfðu verið beitt einhvers konar stafrænu kynferðisofbeldi. Slíkt ofbeldi felst í birtingu, dreifingu eða geymslu á kynferðislegu efni í óþökk brotaþola, eða hótun um það. Stígamót telja mikilvægt að koma því á framfæri að brotaþolar stafræns kynferðisofbeldis eru jafn velkomnir í viðtal og aðrir brotaþolar, enda að kljást við sömu afleiðingar.

Mikill fjöldi ofbeldismanna undir 18 ára aldri

Gögnum er einnig safnað um gerendur þess ofbeldis sem er til umræðu í viðtölum við brotaþola, og var heildarfjöldi ofbeldismanna sem safnað var upplýsingum um í fyrra 700. Langflestir ofbeldismenn voru karlar, eða 95,6%. Flestir brotamannanna voru á aldrinum 18-29 ára, eða 41%, en athygli vekur hve stórt hlutfall gerenda var aðeins 14-17 ára þegar brotið var framið eða 107 einstaklingar (16,7%). Í langflestum nauðgunarmálum var gerandinn vinur eða kunningi eða 34,8%, en næstalgengast var að gerandinn væri maki eða fyrrverandi maki, eða í 19,6% tilvika.

Yfir 10.000 brotaþolar frá upphafi

Við lok síðasta árs höfðu 10.122 einstaklingar leitað til Stígamóta á þeim 32 árum sem þau hafa starfað. Flestir brotaþolanna sem leituðu til Stígamóta 2021 voru konur, 88,2%, karlar voru 11,2% og önnur kyn 0,6%. Flest voru á aldrinum 18-29 ára við komu til Stígamóta eða 52,6%, en athygli vekur að 66,4% brotaþola voru yngri en 18 ára þegar þau voru fyrst beitt kynferðisofbeldi. Þetta er í samræmi við niðurstöður fyrri ára og því ljóst að börn og unglingar eru í sérstakri hættu á að verða fyrir kynferðisofbeldi. Algengustu afleiðingar sem þolendur sögðust kljást við voru kvíði, sektarkennd, skömm, depurð og léleg sjálfsmynd. Þá höfðu 23% gert tilraun til sjálfsvígs.

Í ársskýrslu Stígamóta er að finna frekari upplýsingar um starfsemina og fleiri tölfræðiupplýsingar. Ársskýrsluna í heild sinni er að finna hér.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins

Valdimar Leó rifti ráðningarsamningi við Virðingu og er ekki undir rannsókn Samkeppniseftirlitsins
Fréttir
Í gær

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur

Boðað til mótmæla í Íslendingabyggðinni á Spáni – Ótrúlegur sóðaskapur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið

Brotaþoli hópnauðgunar í Vesturbæ stígur fram og gagnrýnir umræðuna um málið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“

Snærós miðlar af reynslu sinni – „Ég ætla að kenna allt sem ég kann og það er töluvert get ég sagt ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““

Siggi stormur veltir fyrir sér verðyfirlýsingum Bónus – „Einu sinni var talað um „hækkun í hafi““
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“

Segir margt kunnuglegt í áróðri SFS og minnir á hvernig fór fyrir Seyðisfirði – „Þetta er beinlínis siðlaus framsetning.“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu