fbpx
Föstudagur 27.júní 2025
Fréttir

Þjóðverjinn Meyer er týndur – Viðtæk leit stendur yfir í Flateyjardal

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 28. júlí 2022 14:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafin er leit að þýskum ferðamanni í eyðibyggðinni á Flateyjardal á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfanda. Fjölmennt lið björgunarsveita og lögreglu er þar nú að störfum. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Týndi maðurinn er í eldri kantinum, fæddur árið 1947. Hann skildi bílinn sinn eftir við eyðibýlið Hof fyrir tveimur vikum. Skildi hann eftir bréf þar sem hann sagðist ætla að ganga út Flateyjardal yfirí Fjörður og aftur til baka.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu verður lögð áhersla á ítarlega leit að manninum fram á kvöld en slæm veðurspá er fyrir morgundaginn. Hafin er rannsókn á ferðum mannsins í samvinnu við ættingja hans.

Uppfært kl. 15:40:

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur nú nafngreint manninn og birt mynd af honum og bílnum. Maðurinn heitir Bernd Meyer. Fékk lögreglan ábendingu í gærkvöld um að bíll Meyers hefði staðið óhreyfður í marga daga. Í tilkynningu lögreglunnar um málið segir:

„Við viljum gjarnan fá upplýsingar frá þeim sem hafa hugsanlega hitt Bernd Meyer eða hafa einhverjar upplýsingar um ferðir hans. Vinsamlega setjið þá inn skilaboð á nordurland.eystra@logreglan.is eða hringið í síma 444-2800.“

Sjá nánar með því að smella á tengilinn hér að neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“

Batt miklar vonir við formennsku Guðmundar í SFS – „Hann er af allt öðru sauðahúsi heldur en hinir sýnist mér á öllu“
Fréttir
Í gær

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu

Þingmenn hafa eytt yfir 46 milljónum króna í ferðalög á árinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ríkisendurskoðun með harðorða skýrslu um Sjúkratryggingar Íslands – Stofnunin bregðist ítrekað lögbundnu hlutverki sínu

Ríkisendurskoðun með harðorða skýrslu um Sjúkratryggingar Íslands – Stofnunin bregðist ítrekað lögbundnu hlutverki sínu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Borgaði fyrir bílastæði en fékk síðan sekt í heimabankann – Þetta var klúðrið: „Algjör svartur blettur á samfélaginu“

Borgaði fyrir bílastæði en fékk síðan sekt í heimabankann – Þetta var klúðrið: „Algjör svartur blettur á samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“

Persneskumælandi Ísraelsmenn hringdu í íranska hershöfðingja – „Við erum nær þér en hálsslagæðin“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“

Segja að Bretar verði að undirbúa sig undir „stríð heima fyrir“