fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Breskir stríðsfangar í Úkraínu áfrýja dauðadómi – Verða að óbreyttu leiddir fyrir aftökusveit

Ritstjórn DV
Mánudaginn 4. júlí 2022 20:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir breskir stríðsfangar, Aiden Aslin og Shaun Pinner, hafa áfrýjað dauðadómi sem dómstóll í Alþýðulýðveldinu Donetsk, héraði í Austur-Úkraínu sem rússneskumælandi aðskilnaðarsinnar og bandamenn Rússa hafa lýst sjálfstætt ríki, kvað upp. Bretarnir voru ákærðir og dæmdir til dauða ásamt marrokkóskum stríðsfanga, Brahim Saadounem í byrjun júní á grundvelli þess að þeir væru málaliðar í Úkraínuher. Ekki liggur fyrir hvort að sá hafi áfrýjað dóminum þó það verði að teljast líklegt.

Áfrýjun Bretanna, sem voru teknir höndunum í úkraínsku hafnarborginni Mariupol í apríl, byggist á því að þeir hafi sannarlega verið fullgildir meðlimir í úkraínska hernum.

Aslin hefur meðal annars birt þessa mynd á samfélagsmiðlum þar sem hann sver hollustueið í úkraínska herinn til þess að sýna fram á að hann hafi ekki verið óbreyttur málaliði

Mennirnir höfðu einn mánuð til að áfrýja dómnum en komist æðra dómstig að sömu niðurstöðu verða þeir að óbreyttu leiddir fyrir aftökusveit og skotnir til bana.

Úkraínustjórn hefur lýst því yfir að skilgreini  beri alla erlenda sjálfboðaliða sem fullgilda liðsmenn í Úkraínuher og þar með löglega þátttakendur í stríðinu við innrásarher Rússa. Því beri að fara með þá eins og stríðsfanga, í samræmi við Genfarsáttmálann. Þessari skilgreiningu vísa yfirvöld í hinu umdeilda nýja lýðveldi á bug.

Rússland er eina ríki heims sem viðurkennir sjálfstæði Alþýðulýðveldisins Donetsk og nágrannaríkis þess, Alþýðulýðveldisins Luhansk. Saman mynda héruðin tvö svonefnd Donbas-svæði, sem Rússar hafa lagt allt í sölurnar til að sölsa undir sig undanfarnar vikur.

Ólíklegt er talið að áfrýjun Bretanna muni bera nokkurn árangur en hún mun kaupa þeim dýrmætan tíma. Þeirra helsta von er sú að stríðandi fylkingar ákveði að skiptast á föngum.

Bretarnir Aiden Aislin, lengst til vinstri og Shaun Pinner, lengst til hægri , hafa áfrýjað dauðadómi sínum. Í miðjunn er Brahim Saadoune sem einnig hlaut dauðadóm.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar