fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Sárkvalin og þurfti að bíða í meira en fimm klukkustundir á bráðamóttöku – „Mig langar bara aldrei að koma aftur“

Rafn Ágúst Ragnarsson
Þriðjudaginn 31. maí 2022 16:00

Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástandið á bráðamóttöku Landspítalans er grafalvarlegt. Fyrr í dag greindi RÚV frá því að fjórir hjúkrunarfræðingar hafi sagt upp störfum á deildinni  vegna langvarandi álags og lélegs aðbúnaðar. Í gær var full biðstofa á bráðamóttökunni, hátt í hundrað sjúklingar voru skráðir á deildina að bítast um þrjátíu laus meðferðarstæði. Meira en fimm klukkustunda bið var í sumum tilfellum eftir þjónustu þannig að mikil ringulreið var á svæðinu og starfsfólk undir gríðarlegu álagi.

Einn þeirra upplifði ástandið á bráðamóttökunni í gær var Borislav Bukarica en hefur verið búsettur hér á landi í 21 ár ásamt eiginkonu sinni en þau eru bæði frá Serbíu. Hjónin fóru á bráðamóttöku Landsspítalans í gær vegna hræðilegra verkja sem eiginkona hans hefur verið með síðustu þrjá mánuði. Hún greindist með krabbamein fyrir þremur árum og hjónin grunaði að meinið væri farið að láta á sér kræla og mögulega á hættulegri stað en áður. Borislav segist blöskra hversu lengi þau þurftu að bíða eftir aðstoð og kveðst hafa upplifað mikið skipulagsleysi.

Hann segir þau hjón hafa átt mjög torvelt með að fá upplýsingar frá hjúkrunarfræðingum. Að sögn Borislavs kom enginn til þeirra í marga tíma og svo hafi hjúkrunarfræðingur tekið blóðsýni úr eiginkonu hans þar sem hún sátu á biðstofunni og sent þau svo heim. „Hún hefði getað dáið á meðan við biðum hérna eftir lækni,“ segir Borislav í samtali við DV um málið.

„Ég spurði nokkrum sinnum um að fá að fara bara beint inn að hitta lækni. En það var ekki hægt og eftir langa bið kom loks hjúkrunarfræðingur og tók blóðprufu.

Hjónin þurftu að mæta aftur á spítalann í morgun því eiginkona Borislav þurfti einnig að fara í þvagsýnatöku og ómskoðun, og þeim rannsóknum lauk ekki fyrr en rétt fyrir hádegi í dag. „Umhyggja fyrir fólki og samkennd eru framandi setningar hér. Ég er vonsvikinn með heilbrigðiskerfið hér.“ segir hann.

Þá segir Borislav að skipulagið á spítalanum sé hræðilegt. „Ég er að vinna á sjúkraheimili og ég veit hvað skipulag er. Þetta er bara óþolandi. Það eru líka hjúkrunarfræðingar hérna [hjá Landsspítalanum] sem eru annað hvort hættir hérna, eða ætla að hætta. Ég fór í gær og mig langar bara aldrei að koma aftur.“

„Við verðum að laga þetta“

Borislav segir að nú sé nóg komið: „Ég er búinn að vera hérna á Íslandi í 21 ár og þetta verður bara verra og verra með hverju ári. Fyrir 10 árum síðan var bara tveggja eða eins tíma bið. Ég er með margar skyldur, ég er með börn í skóla,“ segir hann.

„Ég þurfti að bíða og bíða og bíða. Maður veit ekki hversu lengi eða eftir hverju maður er að bíða. Allir eru bara að bíða og enginn segir neitt. Hundrað manns í biðstofunni. Ég er kannski útlendingur, en ég er líka Íslendingur. Ég tala ekki bara mitt mál heldur íslensku líka. Við verðum að laga þetta, þetta gengur ekki lengur,“ segir Borislav Bukarica.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu

Guðni snýr sér að Kristrúnu og skorar á hana – Úlfari kastað út eins og hundi á hnakkadrambinu
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum

Fanga-gambítur Pútíns kemur í bakið á honum
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“
Fréttir
Í gær

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi

Segja fjármál Kópavogsbæjar vera í uppnámi
Fréttir
Í gær

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“

Sjötug kona varð fyrir árás og eftirför unglinga í Kópavogi – „Mér fannst þetta skuggalegt“
Fréttir
Í gær

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!