fbpx
Laugardagur 11.maí 2024
Fréttir

Hópur Húsvíkinga skrifaði undir stuðningsyfirlýsingu við dæmdan nauðgara og útskúfaði þolanda hans

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 31. maí 2022 20:00

Frá Húsavík. Mynd: Vilhelm

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Baráttusamtökin Öfgar héldu erindi á Kynjaþingi sem haldið var í Háskóla Íslands síðasta laugardag. Í erindinu, sem bar yfirskriftina Saga þolenda – hin raunverulega slaufun, var farið yfir slaufunarmenningu og sögu þolenda í gegnum aldirnar.

Sjá einnig: Þingmaður hágrét í salnum þegar Tanja sagði sögu sína – „Ég var hrakin í burtu úr samfélaginu mínu“

Erindi Öfga var afar fjölbreytt og fróðlegt en þar var meðal annars fjallað um hið svokallaða Húsavíkurmál, þar sem þolandi kynferðisofbeldis máttu þola slaufun. Sagan, sem rakin var í erindinu, er nokkurn veginn svona:

Árið 1999 var 17 ára stúlku nauðgað á Húsavík. Stúlkan leitaði strax til lögreglu eftir nauðgunina og lagði fram kæru daginn eftir.

Gerandinn ýmist neitaði eða játaði á sig brotið í skýrslutökum lögreglu en fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa kannski haft þá á tilfinningunni að stúlkan væri ekki til í þetta. Maðurinn var sakfelldur fyrir nauðgun og dæmdur í 15 mánaða fangelsi.

Eftir að dómurinn féll leið ekki á löngu þar til stúlkan fór að finn fyrir andúð og slæmu viðmóti frá stórum hópi fólks í bænum. Fólk horfði undan þegar það mætti henni úti á götu og heilsaði henni ekki þegar hún afgreiddi það í verslun. Hún fékk nafnlaus sms með hótunum og ljótum orðum. Þegar hún var úti að skemmta sér með vinum sínum gekk fólk upp að henni og sagði henni að hún væri ógeðsleg og vinum hennar að passa sig á henni.

Á 18 ára afmælisdaginn sinn fékk stúlkan síðan símtal frá prestinum í bænum sem sagði henni að um bæinn gengi undirskriftarlisti til stuðnings geranda hennar.

Ekki er vitað hver stóð að baki þessu framtaki en vitað er að það var með vitund og vilja hins dæmda og fjölskyldu hans. 113 manns skrifuðu undir stuðningsyfirlýsinguna. Var það fólk á öllum aldri og meðal annars fólk sem stúlkan og fjölskyldan hennar álitu vera vini sína. Yfirlýsingin og listinn voru síðan birt í bæjarblaðinu. Þegar blaðið kom út var stúlkan flutt til Reykjavíkur en fjölskylda hennar upplifði líka pískrið og andúðina á götum bæjarins.

Fólk á listanum veitti fjölmiðlum viðtöl og sögðu þar sumir að þeim fyndist að strákurinn ætti að njóta vafans. „Ég trúi því ekki að hann hafi gert þetta, hann er bara ekki þannig strákur,“ sagði einn stuðningsmaður.

Sagt var að pilturinn hefði alveg eins getað kært stúlkuna fyrir nauðgun, þetta hefði verið spurning um hvort þeirra yrði á undan. Sagt var að hún hefði kært nauðgun til að forðast vandræði hjá kærasta sínum. En vinkona stúlkunnar kom að henni og gerandanum og fylgdi henni heim til kærasta síns. Þau sem skrifuðu undir stuðningsyfirlýsinguna þekktu málið bara af sögusögnum og höfðu líklega ekki lesið dóminn.

Þær þorðu ekki að kæra af hræðslu við bæjarfélagið

Ári eftir nauðgunina var dómurinn staðfestur í Hæstarétti. Eftir þann dóm birtu foreldrar stúlkunnar tilkynningu í bæjarblaðinu þess efnis að skilaboðin til dóttur þeirra sýndu svart á hvítu að þolendur kynferðisofbeldis skyldu varast að leita réttar síns. Aðrar stúlkur sem urðu fyrir kynferðisofbeldi á svipuðum tíma hafa haft samband við hana og sagt að þær hafi ekki þorað að kæra vegna meðferðarinnar sem hún fékk. Þær þorðu ekki að kæra af hræðslu við bæjarfélagið.

Stúlkan flutti aldrei aftur til Húsavíkur eftir þetta og kom sáralítið til bæjarins því henni leið svo illa þar. Hún kláraði menntaskóla í Reykjavík og flutti síðan til Noregs þar sem hún býr enn og starfar sem læknir. Hún segir að þegar hún heimsæki Húsavík upplifi hún aldrei þá tilfinningu að vera komin heim, þ.e. þessa ljúfu heimkomutilfinningu sem fyllir flesta þá sem heimsækja æskuslóðir sínar.

Upptaka frá Kynjaþingi er í spilaranum hér fyrir neðan. Erindi Öfga nær frá byrjun og út fyrsta klukkutímann og Húsavíkurmálið er tekið fyrir frá sirka 43:43.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði

Víðir fékk að heyra það frá fréttakonu Stöðvar 2 eftir pistil sem hann skrifaði
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Saka Rússa um að nota efnavopn

Saka Rússa um að nota efnavopn
Fréttir
Í gær

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð

Sökuð um að stela tæplega níu milljónum frá Grunnskólanum á Þórshöfn og félagsmiðstöð í Langanesbyggð
Fréttir
Í gær

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd

Svört skýrsla um rekstur hestamannafélagsins Fáks – Fullyrðingar um svartar launagreiðslur, ólöglegt vinnuafl og óeðlileg vildarkjör – Formaður félagsins segir skýrsluna einhliða og ekki gefa rétta mynd
Fréttir
Fyrir 2 dögum

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“

María Sigrún svarar Degi fullum hálsi og birtir samskiptin – Segir viðbrögð fyrrum borgarstjóra „nýja upplifun“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn

Sigurbjörg sakar Ásdísi um ólýðræðisleg vinnubrögð – „Hér er verið að afvegaleiða umræðuna,“ segir bæjarstjórinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“

Dagur undrandi á Kastljóssþætti Maríu Sigrúnar – „Drungalegt fundarherbergi og fiðlutónlist undir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug

Sá grunaði í Hamraborgar-ráninu bar ábyrgð á hrinu innbrota á höfuborgarsvæðinu fyrir rúmum áratug