fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Óvissustig lýst yfir vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 16. maí 2022 03:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vegna aukinnar jarðskjálftavirkni síðustu vikur, og sérstaklega um nýliðna helgi hefur ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýst yfir óvissustigi Almannavarna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Íbúar eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að lausamunir geti ekki fallið á fólk í svefni.

Veðurstofan hefur vakið athygli á að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því rétt að sýna aðgát við brattar hlíðar.

Í tilkynningu Almannavarna segir að óvissustig þýði að aukið eftirlit sé með atburðarás sem getur á síðari stigum leitt til þess að heilsu og öryggi fólks verði ógnað.  Það að lýsa yfir óvissustigi er einnig hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“

Ása föst í hryllingshúsinu: „Fólk gengur stöðugt framhjá húsinu, tekur myndir og bendir“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“

Þriggja áratuga ráðgáta um svindlið á Helga Ólafssyni leyst – „Þetta hlaut alltaf að komast upp“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu