fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Páll með harðorðan pistil – „Ég er bara venjulegur maður sem hef orðið að þola harða atlögu að heilsu minni og æru“

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. maí 2022 11:45

Páll Steingrímsson og Samherji. Samsett mynd DV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er bara venjulegur maður sem hef orðið að þola harða atlögu að heilsu minni og æru af óvenju ósvífnum fjölmiðlamönnum sem ég vil meina að starfi eins og glæpamenn. Fólki af þessu sauðahúsi vil ég helst mæta fyrir dómstólum í von um að ná fram því réttlæti að fá að njóta einkalífs sem allir borgara landsins eiga rétt á og varið er í stjórnarskrá,“ segir Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, í pistli á Facebook, þar sem hann fer hörðum orðum um þá blaðamenn sem nú hafa stöðu sakbornings í rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á stuldi á síma Páls í fyrravor og afritun á gögnun úr honum.

Talið er að Páli hafi verið byrlað skömmu áður en nákominn aðili stal síma hans en um þetta segir Páll í pistli sínum:

„Mér líður stundum eins og ég hafi óvart lent í lélegri bíómynd enda sú atburðarás sem hófst fyrir ári síðan lyginni líkust. Staðreyndin er hins vegar sú að þetta er ekkert handrit, engin bíómynd ekki þáttur á Netflix. Fyrir ári síðan greip aðili nákominn mér, þjakaður af veikindum, til örþrifaráðs til að þóknast öðrum. Ég endaði á gjörgæslu og í öndunarvél og ef ekki væri fyrir stærð mína og hversu líkamlega hraustur ég er og fyrir framúrskarandi gott heilbrigðisstarfsfólk væri ég ekki hér. Við þessar aðstæður var sími minn tekinn og honum komið í hendur starfsmanns ríkisfjölmiðils okkar Íslendinga sem sá um að afrita hann og efnisbútum úr samtölum mínum við samstarfsmenn og vini, sem þar var að finna, dreift á milli valinna fjölmiðlamanna sem síðan hafa gert sér mat úr honum, nú síðast í lok desember 2021. Gefa sömu fjölmiðlamenn í skyn að þeir berjist fyrir göfugri æðri markmið en okkur almúganum eru skiljanleg. Nú þegar þeir vita upp á sig sökina og við færumst nær því að varpa ljósi á sannleikann reyna þeir að vekja samúð hérlendis sem erlendis með sjálfum sér, sem fórnarlömb „samsæris“, og reyna að sama skapi að skapa sektarkennd hjá þeim sem misgert var við.“

Talið er að gögn úr síma Páls hafi orðið grunnur að umfjöllun Kjarnans og Stundarinnar í fyrra um svonefnda skæruliðadeild Samherja sem hafi staðið í áróðurs- og undirróðursstríði og reynt að koma höggi á fjölmiðlamenn. Páll segir þá umfjöllun hafa verið villandi og meðal annars verið dregnar dramatískar ályktanir af líkingamáli:

„Ég veit ekki hvort skrifa eigi það á skilningsleysi þessa hóps á tungumálinu okkar eða illvilja en útúrsnúningar þeirra á myndlíkingum eru landamæralausar. Tungumálið okkar er auðugt og með öðrum orðum blása myndlíkingar enn meira lífi í frásagnir. Myndlíkingar samanstanda af þremur hlutum: raunverulegur þáttur, ímyndaður þáttur og tengingin þar á milli. Notkun þeirra er því til þess fallin að efla og auka áhrif þess sem sagt er. Að „stinga og snúa“ eða „strá salti í sárið“ er, eins og ég hef útskýrt, myndlíking á því að nudda fólkinu upp úr þeirri staðreynd að þau hafa aldrei geta svarað einföldum, beinskeyttum spurningum mínum um vinnubrögð sín.“

Greinir Páll frá því að eftir að hann horfði á umfjöllun Kveiks um Namibíumál Samherja hafi hann ákveðið að koma fyrirtækinu til varnar og tjá sig um málefni þess opinberlega á grundvelli staðreynda. Hann segist hafa leiðrétt rangfærslur og spurt spurninga en komið þar að tómum kofanum hjá fjölmiðlamönnum sem fjölluðu um mál Samherja:

Ég tók ákvörðun í nóvember 2019, eftir að hafa horft á Kveiksþátt um sturlaðar ásakanir í garð fólks sem ég hef þekkt um árabil af engu nema góðu, að ég vildi bjóða fram mína krafta og tjá mig opinberlega um Samherja, en þó aðeins á grundvelli staðreynda. Því vann ég náið með fólki sem hafði aðgang að öllum upplýsingum um ásakanir fjölmiðlamannanna og hins svokallaða uppljóstrara.

En hvað gerði ég sem kallaði þennan óskapnað yfir mig? Ég leiðrétti rangfærslur og spurði spurninga. Þeim var aldrei svarað heldur var lokað á mig á samfélagsmiðlum, vísað í „gögnin“ en aldrei hvaða gögn þó ég þráspyrði, og oft spurningum mínum eytt út. Gekk ég ákveðið fram um að fjölmiðlamennirnir sem stóðu að baki Kveiksþættinum svöruðu beinskeyttum spurningum mínum um vinnubrögð sín og rök. Höfðu þeir ekkert áþreifanlegt í höndunum heldur réttlættu gjörðir sínar með tilvísun í æðri tilgang og óljóst göfuglyndi. Þegar ég spurði um kjarnann, bentu þeir á hismið. „Gögnin tala sínu máli.“ Eða „þjóðin hefur sagt sitt“. En hvaða gögn og hvar sagði þjóðin eitthvað og hvað er þjóðin?

Þegar ekki dugði að eyða út athugasemdum eða svara mér með orðunum „gögnin tala sínu máli“ hafa þeir farið í mig persónulega. Ég var sakaður um að vera ekki höfundur greina minna. Myndi einhver ásaka Bubba Morthens að vera ekki höfundur ljóða sinna eða laga þó stafsetning sé ekki hans sterkasta hlið? Ég gagnrýndi vinnubrögðin en var jafnharðan ásakaður um að fara í persónur þó aldrei hafi verið hægt að finna því stað. Ég spurði um gögn og rökstuðning en var ásakaður um árásir.

Páll segir að árásir á sig hafi fyrst byrjað fyrir alvöru þegar hann lá í öndunarvél og sími hans var afritaður: „Snúið var út úr brotakenndu upplýsingunum sem fjölmiðlamennirnir fengu og persónulegum skoðunum mínum og þeirra sem ég átti í einkasamskiptum við um menn og málefni var snúið upp í annarleg afskipti af hálfu Samherja af stjórnmálum og félagsmálum.“

Pistilinn má lesa í heild með því að smella á tengilinn hér fyrir neðan:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work