fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
Fréttir

Deildarstjóri við grunnskóla sökuð um kynferðislega áreitni í garð ungs samstarfsmanns – Bæjaryfirvöld „hótuðu mér brott­rekstri“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 13. apríl 2022 13:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Deildarstjóri við grunnskóla á Suðurnesjum, sem jafnframt á sæti í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar, er sökuð um að hafa áreitt tæplega tvítugan dreng svo mánuðum skipti í lok síðasta árs. Fréttablaðið greinir frá en drengurinn gagnrýnir bæjarvöld á Suðurnesjum vegna aðkomu þeirra í málinu og veltir upp þeirri spurningu hvort eins hefði verið brugðist við ef um karlkyns geranda væri að ræða. Heimildir DV herma að umræddur skóli sé Sandgerðisskóli. 

Pilturinn, sem starfar við sama grunnskóla og konan, kærði málið til lögreglu í mars en lögregla felldi málið niður með vísan til þess að ekki væru fyrir hendi nægilega sterkar sannanir. Var konunni og piltinum boðin sáttameðferð í málinu.

Líkt og áður segir gagnrýnir pilturinn bæjaryfirvöld vegna þeirra aðkomu, en hann hafi sett inn færslu á Instagram með samskiptum sínum við umrædda konu. Þá hafi bæjaryfirvöld sett sig í samband við lögmann piltsins og beðið hann um: „að fjarlægja færsluna og hótuðu mér brottrekstri.“

Pilturinn segir málið einkennast af meðvirkni og veltir því upp hvort að sambærilegri þöggun hefði verið beitt ef kona á tvítugsaldri hefði orðið fyrir sambærilegri áreitni.

„Þetta er ekkert annað en með­virkni í litlu bæjar­fé­lagi og hlutunum sópað undir teppið.“

Fréttablaðið ræddi einnig við móður drengsins en hún sagði að bæjaryfirvöld hafi á fundi hvatt son hennar til að fara aðrar leiðir í málinu en að kæra.

„Það var verið að letja mann sem er búinn að taka ákvörðun um að tilkynna málið til lögreglu.“ 

Skjáskot af áðurnefndri færslu á Instagram hafa gengið manna á milli undanfarið, en þar biðst konan afsökunar á framferði sínu og viðurkennir að hafa komið illa fram.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Garner aftur til United?
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“