fbpx
Miðvikudagur 12.nóvember 2025
Fréttir

Ráðleggja fólki að gera ráðstafanir vegna jarðskjálftanna og leita til fagmanna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 1. mars 2021 12:49

Hilmar Harðarsson, formaður Samiðnar. Mynd: Aðsend.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikilvægt er að fólk geri ráðstafanir til að draga úr tjóni vegna jarðskjálfta, að sögn Hilmars Harðarssonar, formanns Samiðnar, Sambands iðnfélaga. Ráðleggur hann fólki að leita aðstoðar iðnaðarmanna með réttindi til að tryggja að hlutir séu festir rétt og vel og vatnsinntak og hitaveituofnar séu í lagi.

„Það er gott ráð að fólk leiti aðstoð faglærðra iðnaðarmanna til fara yfir húsnæði og gera fyrirbyggjandi ráðstafanir vegna jarðskjálfta sem ganga nú yfir suðvesturhluta landsins. Mikilvægt er að láta festa húsgögn, svo sem hillur og skápa við gólf eða veggi. Þá er gott að láta iðnaðarmenn fara yfir staðsetningu vatnsinntaks og rafmagnstafla og tryggja hitaveituofna til að koma í veg fyrir leka. Einnig er ráð að fá iðnaðarmenn í heimsókn til að skoða hvort skemmdir hafi orðið í þeim skjálftum sem hafa gengið yfir t.d. steypuskemmdir,“ segir Hilmar, í fréttatilkynningu frá Samiðn.

Þá segir enn fremur í tilkynningunni:

„Hilmar segir að ekki sé mælt með að þungir munir séu geymdir ofarlega í hillum og að þungur borðbúnaður og hlutir séu geymdir í neðri skápum, helst lokuðum. Einnig er gott að hafa barnalæsingar á skápum. ,,Mikilvægt er að festa myndir og ljósakrónur í lokaðar lykkjur og tryggja að þungir hlutir geti ekki fallið á svefnstað. Byrgja skal fyrir glugga eða setjið öryggisfilmu á rúður til að koma í veg fyrir skæðadrífu glerbrota ef rúða brotnar. Faglærðir iðnaðarmenn sjá um allt sem viðkemur þessu og fara vel yfir allt varðandi öryggi á heimilinu,” segir Hilmar og minnir á að nú sé rétti tíminn til að láta yfirfara húsnæði þar sem fólk á rétt á endurgreiðslu á virðisaukaskatti vegna átaksins Allir vinna. Endurgreiðslan var hækkuð úr 60 prósent í 100 prósent til að bregðast við niðursveiflu í efnahagslífinu af völdum COVID-19.

Hilmar bendir á að heimild til endurgreiðslu á virðisaukaskatti sé jafnframt víðtækari á þessu tímabili en áður og tekur m.a. til frístundahúsnæðis, mannvirkja í eigu tiltekinna félagasamtaka og bílaviðgerða eins og Samiðn lagði mikla áherslu á.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Dóra Björt hætt við: „Þetta hefur valdið meiri skjálfta innan flokksins en ég hefði viljað”

Dóra Björt hætt við: „Þetta hefur valdið meiri skjálfta innan flokksins en ég hefði viljað”
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Svangur og ósáttur eftir samlokukaup á Grill66 – „Það er eins og skinkan og kálið vilji ekki vera þarna“

Svangur og ósáttur eftir samlokukaup á Grill66 – „Það er eins og skinkan og kálið vilji ekki vera þarna“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“

Segir kynjajafnrétti og aukna þátttöku karla í umönnun barna hafa breytt orðasambandinu „eiga von á barni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Góð tíðindi fyrir meinta Gilgo-raðmorðingjann Rex Heuermann

Góð tíðindi fyrir meinta Gilgo-raðmorðingjann Rex Heuermann
Fréttir
Í gær

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru

Betur fór en á horfðist hjá ungum börnum í Reynisfjöru
Fréttir
Í gær

Varla byggt fjölbýlishús á Íslandi sem er án galla

Varla byggt fjölbýlishús á Íslandi sem er án galla