Klukkan 04.15 varð jarðskjálfti upp á 3,0 í Ingólfsfjalli. Hann fannst vel á Selfossi, Hveragerði og í Grímsnesi.
RÚV skýrir frá þessu. Haft er eftir Böðvari Sveinssyni, náttúruvársérfræðingi hjá Veðurstofunni, að ekki sé hægt að lesa neitt sérstakt í þennan skjálfta að svo stöddu. Þetta sé þekkt skjálftasvæði.