fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Segir að stjórnvöld hafi mismunað fiskeldisfyrirtækjum

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 3. júní 2021 07:59

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í greinargerð sjókvíaeldisfélagsins Hábrúnar kemur fram að brot Skipulagsstofnunar á lögum í meðferð á umsókn félagsins og lög sem Alþingi samþykkti sumarið 2019 hafi mismunað fyrirtækinu og gert út um framtíðarvöxt þess.

„Árið 2018 þótti ljóst að önnur fyrirtæki voru farin að horfa til þess að koma sér upp aðstöðu í Ísafjarðardjúpi og nánast „teppalögðu“ Djúpið með umsóknum. Þá var ljóst að svo illa yrði þrengt að starfsemi Hábrúnar að vaxtarmöguleikar yrðu engir ef fram héldi sem horfði. Var því ákveðið að hefja undirbúning að umsókn um 11.500 tonna eldi á regnbogasilungi í Djúpinu,“ segir í greinargerð Hábrúnar að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag.

Segir blaðið að í greinargerðinni komi fram að 20. júní 2019 hafi Alþingi samþykkt frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra, um fiskeldi. Einnig kemur að sögn fram í greinargerðinni að Skipulagsstofnun hafi brotið lög með því að afgreiða ekki umsókn fyrirtækisins um tillögu að matsáætlun vorið 2019.

Á síðustu stundu hafi atvinnuveganefnd Alþingis breytt markalínu þess hvaða umsóknir skyldu fylgja gömlu lögunum yfir í þau nýju. „Nefndin hafði upplýsingar um það að Hábrún, Arnarlax og fleiri félög væru úti með sínar umsóknir samkvæmt þessari breytingu, en lét það sig engu skipta,“ segir að sögn í greinargerðinni og einnig að birtingu laganna hafi verið frestað til 18. júlí 2019 að beiðni sjávarútvegsráðuneytisins til að hjálpa fyrirtækjum að komast inn í frummatsskýrslu. „Hábrún, eitt fyrirtækja, var ekki upplýst um þennan frest, kannski vegna þess að umsókn þeirra var ekki afgreidd. Þetta er alvarleg mismunun af hálfu stjórnsýslunnar sem óheimilt er að hygla tilteknum aðilum á kostnað annarra,“ segir einnig og að afleiðingin af þessu hafi verið að umsókn Hábrúnar um 11.500 tonna eldi á regnbogasilungi fékk ekki afgreiðslu samkvæmt gömlu lögunum „heldur væri félaginu gert að bíða eftir útboði nýrra leyfa og bjóða þar í kappi við félög sem flest öll eru nánast alfarið í eigu erlendra eldisrisa,“ segir einnig.

Segir Hábrún að með þessu hafi Alþingi gert út af við áform um eðlilegan og nauðsynlegan vöxt fyrirtækisins og að „lítið alíslenskt, eldisfyrirtæki væri skilið eftir eitt úti í kuldanum.“

Segir Hábrún að ábyrgðin á þessari lagasetningu hvíli á herðum sjávarútvegsráðherra og þáverandi meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis. „Þetta hentaði sumum fyrirtækjum afar vel, en slátraði möguleikum frumkvöðuls fiskeldis í Ísafjarðardjúpi, Hábrún hf., til að geta byggt upp sjálfbæran rekstur,“ segir einnig í greinargerðinni að sögn Fréttablaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta

Sakar Sjálfstæðismenn um hræsni og segir að af öllum lygum stjórnarandstöðunnar sé þessi sú svæsnasta
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“

„Við vorum bara litlir hræddir strákar“
Fréttir
Í gær

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu

Fór inn í kvennabúningsklefa í Sundhöllinni og handlék kynfæri sín fyrir framan stúlku í sturtu
Fréttir
Í gær

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“

Hundur Margrétar lifir enn – „Mér er haldið í hengingaról“
Fréttir
Í gær

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Í gær

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“