fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Dramatík Halldórs og Róberts heldur áfram – Halldór segir rangfærslur vera í stefnunni

Bjarki Sigurðsson
Miðvikudaginn 7. apríl 2021 11:15

Fyrrum samstarfsmennirnir Róbert og Halldór. Mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Alvogen og Alvotech og fyrrum samstarfsmaður Róberts Wessman, segir Fréttablaðið fara með rangt mál. Halldór sendi tilkynningu til fjölmiðla í dag vegna þess. Halldór hefur sakað Róbert um hótanir, ofbeldi og ærumeiðingar gagnvart óvildarmönnum í fjölmiðlum undanfarið.

Í frétt Fréttablaðsins er Halldór sagður hafa fundað með Björgólfi Thor fjárfesti í lok síðasta árs til að afla sér upplýsinga sem gætu nýst honum til að hafa uppi fjárhagskröfur á hendur fyrirtækjunum. Þar kemur einnig fram að Halldór hafi leitað til lögmannsstofunnar Quinn Emanuel til að „knýja fram samningsstöðu“.

Halldór vísar þessu alfarið á bug og segir rangfærslur vera í stefnunni, sem hann muni frekar gera grein fyrir Héraðsdómi. Hann segir umfjöllun Fréttablaðsins ekki rétta, er varði samskipti sín við Björgólf Thor og samstarfsvilja hans í rannsókninni. Upptaka og handrit er til af umræddum fundi með hinni svokölluðu „rannsóknarnefnd“, sem staðfesti eina af mörgum rangfærslum fyrirtækisins. Halldór segir að fyrirtækin hafi umræddar upptökur en honum hafi verið neitað um afrit af þeim.

„Ég var spurður um það sérstaklega hvort ég hafi hitt Björgólf Thor. Ég greindi frá því að ég hafi spurt hann um ósæmilega hegðun Róberts, þegar hann var forstjóri Actavis. Hann hafi staðfest við mig ákveðna atburðarás í ágúst 2008, sem ég taldi mikilvægt að upplýsa um. Á þessum tíma hafi Róbert hringt í Sigurð Óla Ólafsson, aðstoðarforstjóra Actavis og gert tilraun til að segja honum upp störfum undir áhrifum áfengis,“ segir Halldór en Björgólfur staðfesti við hann að Róbert hafi verið rekinn umsvifalaust frá Actavis fyrir þessa ósæmilegu hegðun.

Halldór taldi þessar upplýsingar vera mikilvægar fyrir rannsókn málsins og að þær sýni að ósæmileg hegðun Róberts nái yfir að minnsta kosti tólf ára tímabil. Hann segir Björgólf hafa verið eina maninn sem sýndi kjark til að stöðva ósæmilega hegðun Róberts.

Setti sig í samband við óvildarmenn Róberts

„Þá er því haldið fram í fréttinni að ég hafi neitað að mæta í þriðja sinn fyrir rannsóknarnefnd. Það er alrangt og fyrir liggur staðfesting á þessu á upptöku. Lögmaður White & Case sagði málinu lokið eftir sex klukkustunda yfirheyrslu, nema ég hefði frekari upplýsingar. Ég óskaði þá eftir því að fá aðgang að vinnugögnum mínum til að geta aðstoðar frekar við rannsóknina og var þeirri beiðni hafnað. Ekki varð því úr frekari fundahöldum og enn þá hef ég ekki verið upplýstur um niðurstöðu rannsóknar og engin svör fengið frá fyrirtækjunum um ásakanir,“ segir Halldór í tilkynningunni.

Halldór segist hafa sett sig í samband við alla þá óvildarmenn Róberts sem hann hafi borið þungum sökum og vildi koma höggi á. Eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum, er um að ræða tvo háttsetta embættismenn, alþjóðlegan fjárfesti og íslenskan blaðamann. Halldór segir ásakanir Róberts hafi í raun verið andstyggileg aðför að þeirra æru og mannorði. Halldór telur ekki óeðlilegt að hann ræði við umrædda aðila og beri undir þá ásakanir.

„Áfram er því haldið fram að ég hafi uppi einhverjar fjárhagslegar kröfur. Ég hef nú í tvígang sent stjórnum Alvogen og Alvotech sáttatillögu. Þar kemur skýrt fram að ég hef engar fjárhagslegar kröfur á hendur fyrirtækjunum. Ég hef líkt og áður áskilið mér rétt til að sækja bætur til Róberts persónulega en hef ekki haft uppi sérstakar kröfur í þeim efnum. Tilgangur fundarins með Björgólfi Thor var ekki að knýja fram fjárhagslegt uppgjör og það kemur ekki fram í þeim gögnum sem fyrirtækin hafa lagt fram í héraðsdómi. Ég ítreka áskorun mína um að fyrirtækin einfaldlega opinberi öll gögn úr yfirheyrslum lögmannsstofunnar White & Case.“

Einn á móti sex

Halldór segir stefnu fyrirtækisins fulla af fullyrðingum sem ekki standist skoðun. Hann hafi til að mynda upplýst nefndina um að hann hafi við tilteknar kringumstæður rætt við fjölmiðla, en tók sérstaklega fram að engum trúnaðarupplýsingum hafi verið dreift.

„Staðreyndin er auðvitað sú að enginn fjölmiðill, hvorki hér heima eða erlendis, hafi fjallað um málið á þeim tíma, sem málið var í rannsókn. Það var ekki fyrr en fyrirtækin ákváðu að tilkynna sjálf um „hvítþvott“ Róberts, að fjölmiðlar sýndu málinu áhuga.

Halldór segir að Fréttablaðið geri talsvert úr því að hann hafi leitað til erlendrar lögmannsstofu til að aðstoða við málið. Halldór segir ljóst frá upphafi að við ofurefli hafi verið að etja þegar stór alþjóðlegu fyrirtæki og Róbert sjálfur sé annars vegar. Þær lögmannsstofur sem hafa verið í sambandi við Halldór eftir áramót eða unnið að tengdum málum eru: BBA Legal, Lex lögmannsstofa,  Landslög og Mandat á Íslandi. Erlendis hafi White & Case og Boies Schiller Flexner gætt hagsmuna félaganna og Róberts.

„Ég réði einn lögmann á Íslandi til aðstoða mig í málinu. Hann leitaði til erlendrar lögmannsstofu með stuðning og þeirra hlutverk hefur verið að sjá um bréfaskriftir vegna málsins. Ef sættir nást ekki í málinu, var óljóst hvar í heiminum slík mál yrðu höfðuð og því var mikilvægt að hafa bakland utan Íslands ef til kæmi. Lögmaður hjá Lagastoð lögmannsstofu hefur unnið að málinu fyrir mína hönd og satt best að segja hefur hann verið hálf einmana, þegar kemur að því að skylmast við sex lögmannsstofur,“ segir Halldór að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við

Sigur hjá Harvey Weinstein: Dómi gegn honum í New York snúið við
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“