fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Hakkar í sig pistil Önnu Karenar – „Erfitt að gera upp á milli hvort er verra, málfarið eða efnið“

Jón Þór Stefánsson
Föstudaginn 25. september 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjóðfræðingurinn Óli Gneisti Sóleyjarson fer hörðum orðum um pistil Önnu Karenar Jónsdóttur sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Umræddur pistill hefur vakið upp miklar umræður, sérstaklega á samfélagsmiðlinum Twitter. Óli skrifaði pistil til höfuðs henni á síðunni Truflun.net. Hann telur erfitt segja til um hvort að málfar eða efni pistils hennar sé verra.

Sjá einnig: „Úber rasískur“ pistill í Morgunblaðinu veldur úlfúð – „Er hún opinberlega að peppa nasisma?“

„Það virðast einhverjir enn kaupa Moggann. Ég veit ekki hvers vegna. Núna gengur um Twitter grein sem var birt þar, væntanlega í dag. Greinin er eftir Önnu Karen Jónsdóttur (BS hagfræði) og fjallar um Black Lives Matter hreyfinguna. Þessi grein fór ekki á flakk af því að hún er vel skrifuð og ígrunduð. Það er næstum erfitt að gera upp á milli hvort er verra, málfarið eða efnið.“

Í pistli sínum stillir Óli fram fullyrðingum Önnu og leiðréttir eða gagnrýnir þær svo, hvort sem það sé efnið eða málfræðin sem fari í taugarnar á honum.

Til að mynda setur Óli spurningarmerki við hagfræðikunnáttu Önnu, sem er með BS-gráðu í hagfræði. Þá spyr hann hvers vegna hún noti heitið Tiannanmen Square, frekar en Torg hins himneska friðar, þar sem að viðfangið er utan hins enskumælandi heims. Óli heldur því einnig fram að vanþekking Önnu á innflytjendastefnu Bandaríkjanna skíni í gegn í greininni og finnst sérstakt að hún bendli barneignum utan hjónabands í umræðuna, sem hann segir svipa til Bandarískrar íhaldspólitíkur.

Hér að neðan má lesa pistil Óla Gneista:

Samkvæmt Önnu Karen þá er málflutningur BLM byggður á misskilningi eða rangfærslum. Hún segir:

„Árið 2019 voru 10 svartir óvopnaðir skotnir til dauða samkvæmt gagnagrunni Washington Post.“

Það er margt athugavert við þessa fullyrðingu. Í fyrsta lagi er hún röng. Það voru 14 óvopnaðar svartar manneskjur skotnar til bana af lögreglu árið 2019 skv. umræddu gagnasafni. Í öðru lagi þá er skilgreiningin á að vera „vopnaður“ mjög óljós. Lögreglan skaut allavega fjóra sem voru „vopnaðir“ með leikföngum. Í þriðja lagi er hérna einungis verið að tala um þá sem eru skotnir. Þið munið að t.d. George Floyd var kraminn til bana. Í fjórða lagi er hérna gert ráð fyrir að það sé alltaf réttlætanlegt að drepa fólk ef það er „vopnað“. Hérna erum við að tala um land þar sem stjórnarskráin ver réttindi fólks til að bera vopn.

Tölfræðin er mjög einföld. Svart fólk er mun líklegra til að vera drepið af lögreglu en aðrir hópar og þá sérstaklega þegar það er óvopnað. 

„Til samanburðar voru 48 lögreglumenn myrtir. Hver sá sem lýsir yfir stuðningi við lögregluna á þessum morðum á hins vegar á hættu að vera rekinn úr vinnu eða skóla.“

Ég myndi vilja gagnrýna þetta en ég skil ekki einu sinni hvert Anna Karen er að fara hérna. „Hver sá sem lýsir yfir stuðningi við lögregluna á þessum morðum“ er bara óskiljanleg rugl. Satt best að segja væri rökréttast að skilja þetta þannig að hún sé að tala um þá sem styðja að lögreglufólk sé myrt en ég held að hún meini það örugglega ekki. Ég veit ekki hvort hún er að tala stuðning við lögreglu þegar lögreglumenn eru drepnir eða stuðning við morð lögreglu á óvopnuðu svörtu fólki. Ef hún meinar það fyrrnefnda þá er það án efa rugl. Allavega væri ég til í að fá lista yfir fólk sem hefur verið rekið fyrir að sýna samúð þegar lögreglumenn eru drepnir.

Notkun Önnu Karenar á hagtölum bendir til þess að það sé einhver brotalöm í hagfræðimenntun hennar, eins og sést hér:

„Þrátt fyrir að vera bara 13,4% þjóðinnar þá eru svartir í langflestum tilfellum yfirgnæfandi meirihluti afbrotamanna. Sem dæmi voru samkvæmt ársskýrslu New York Police Department árið 2019 afbrotahlutföllin þessi:“

Hérna tekur Anna Karen fjölda svarts fólks í Bandaríkjunum og yfirfærir á New York borg til að sýna glæphneigð þeirra. En vandamálið er að í New York þá er hlutfall svartra mun hærra en víða annars staðar. Þannig að tölurnar hennar eru mjög villandi. En auðvitað er það aukaatriði því staðreyndin er sú að það er ekki svart fólk sem er líklegra til að vera handtekið fyrir glæpi heldur fátækt fólk.

Þar sem efnahagskerfi Bandaríkjanna hefur verið hannað til þess að gera svart fólk fátækt (leitið að t.d. „red lining“ á netinu) þá er það líklegra til þess að fremja glæpi. Af því að það er fátækt. Af því að því skortir tækifæri.

En Anna Karen telur að rasismi geti ekki verið vandamálið:

„Ástæður fátæktar geta verið margar og flóknar. Rasismi er hins vegar langsótt skýring árið 2020. Ef hvíti maðurinn stjórnar efnahagnum milli kynþátta og heldur þannig efnahagsstöðu svartra niðri, ætti þá sá hvíti ekki að hafa sett sig í fyrsta launaflokk á undan Asíubúanum? Slíkt er ekki raunin en Asíubúar eru í flestum mælingum með betri afkomu en hvítir.“

Hér kemur til algjör vanþekking hennar á innflytjendastefnu Bandaríkjanna. Það voru lengi miklar takmarkanir á fjölda innflytjenda frá Asíu (sérstaklega reyndar Kína sbr. The Chinese Exclusion Act). Þegar var farið að hleypa inn fleirum frá þessum heimshluta þá var lögð áhersla á að hleypa inn menntuðum einstaklingum. Vel menntað fólk er líklegra til að fá hærri laun og að eignast börn sem menntar sig vel. Þannig að góð efnahagsleg staða fólks sem rekur uppruna síns til Asíu er komin til vegna (rasískrar) innflytjendastefnu. Það er mjög fróðleg umræða um þetta í hlaðvarpinu „Whiting Wongs“.

Hún Anna Karen reynir líka að flytja inn ákveðna tegund af bandarískri íhaldspólitík:

„Það eru margir þættir sem hafa áhrif á fátækt. Það má velta því fyrir sér hvort það sé út af menningu eða vegna þess að 70% af lituðum börnum í dag fæðast utan hjónabands.“

Við Íslendingar sem erum vön því að börn fæðist utan hjónabands erum frekar hissa á svona málflutningi. Af hverju er hjónabandsstaða eitthvað lykilatriði? Báðir synir mínir er fæddir utan hjónabands. En er ekki líklegra að efnahagslegt umhverfi hafi áhrif á hjónabandsstöðu heldur en öfugt?

Í seinni hluta greinarinnar fer Anna Karen í samsæriskenningastuð. Hún nefnir til Bill Gates og George Soros. Hún bendir líka að Kína hafi lýst yfir stuðningi við Black Lives Matter eins og það sýni hve vafasöm samtökin eru. Það að keppinautar á alþjóðasviðinu noti mannréttindamál til að koma höggi á andstæðinga sína er ekki nýtt og það ógildir ekki mannréttindabaráttuna.

Í dramatísku útspili spyr Anna Karen:

„Höfum við gleymt Tiannanmen Square 1989?“

Ég játa að ég man mjög vel eftir atburðunum árið 1989 en ég man líka að á Íslandi var það kallað Torg hins himneska friðar. Það er fátt hallærislegra en að nota ensk heiti á svæði utan hins enskumælandi heims.

Þá dregur Anna Karen fram vafasamar fullyrðingar um vafasama fortíð konu sem tengist BLM.

„Meðhöndlun fjármagnsins sem þessir fjársterku aðilar leggja hreyfingunni til fer í gegnum Susan Rosenberg og situr hún í fjáröflunarnefnd samtakanna BLM.

Susan þessi er dæmdur hryðjuverkamaður og ævilangur aktívisti, sem hefur leitt til dauða þó nokkurra manna.“

Ég ætla ekki að reyna að tæta í sundur fyrri setninguna því að þó hún sé bókstaflega röng þá er það aðallega vegna þess að Anna Karen kann ekki að tjá sig í rituðu máli. Það hvort við ættum að kalla Susan Rosenberg hryðjuverkamann er álitamál (sjá Snopes). En það að hún hafi „til dauða þó nokkurra manna“ byggir ekki á staðreyndum. Hún var ekki dæmd fyrir neitt slíkt, ekki einu sinni ákærð, en hún hefur vissulega verið sökuð um það. Ferill hennar frá því að hún var leyst úr fangelsi fyrir nær tuttugu árum er hins vegar óneitanlega laus við tengsl við ofbeldi eða ógnanir.

Anna Karen vill helst kalla BLM hryðjuverkasamtök og notar þá stórar yfirlýsingar án sannana.

„Hreyfingin snýst ekki um rasisma heldur pólitísk völd. Ef þú brennir fyrirtæki, lemur, drepur eða nauðgar öðru fólki og gjörsamlega rústar heilu borgunum, ertu þá ekki hryðjaverkamaður?“

Nær ekkert af þessu lýsir BLM en þetta er ágæt lýsing á því hvernig komið hefur verið fram við svart fólk í Bandaríkjunum í gegnum tíðina.

Ég verð að lokum að benda á þessa setningu sem er svo undarleg að ég hálfdáist að henni:

„Fólkið sem gagnrýnir nasista Hitlers er á sama tíma búið að lýsa yfir stuðningi við samtökin á samfélagsmiðlum.“

Bravó.

Þetta á ekki að vera endanleg yfirferð á greininni. Hvorki málfars- eða efnislega. Bara nokkur atriði sem var einfalt að benda á. Hlutir sem Anna Karen hefði væntanlega getað flett upp sjálf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum