fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Reynir vill nafngreina og myndbirta óprúttna smitbera – „Sekir um tilraun til manndráps“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 22. september 2020 11:00

Reynir Traustason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reynir Traustason, ritstjóri Mannlífs, er ómyrkur í máli í ritstjórnarpistli sem hann birti í dag. Reynir vill að óprúttnir smitberar séu nafngreindir opinberlega og fordæmdir.

„Það er komið á daginn að megnið af þeim smitum sem hafa borist í fólk á Íslandi koma frá frönskum ferðamönnum sem brutu sóttkví,“ skrifar Reynir.  Hann furðar sig á því að lögregla og sóttvarnaryfirvöld haldi verndarvæng yfir þessum einstaklingum á meðan aðrir séu nafngreindir í opinberum dómum fyrir munn minni sakir.

„En þegar kemur að smitberum sem valda þúsund sinnum alvarlegra tjóni á heilsu fólks og lífi skal ríkja þögnin ein. Við skulum ekki búa til sökudólga, er margkveðin vísa. Ekki benda á neinn.“ 

Reyni finnst einnig ótækt að sóttvarnaryfirvöld hafi ekki nafngreint alla þá veitingastaði sem smit hafi komið upp á. Það sé almannahagsmunamál að menn geti gert sér grein fyrir hvort þeir hafi komist í smithættu með viðveru á tilteknum veitingastöðum.

„Við eigum að fá nöfn Frakkanna og annara smitbera sem brjóta reglur upp á borðið. Við skulum fordæma þá sem smita vegna sjálfselsku og siðleysis. Hlífum þeim sem hlífa ber og vörumst að dæma alla þá sem bera smit.“

Reynir segir það mikilvægt að smitrakning eigi sér stað fyrir opnum tjöldum.

„Flettum ofan af öllum þeim sem brjóta sóttkví og herðum refsingar. Birtum nöfn og myndir. Þeir sem brjóta sóttkví eru sekir um tilraun til manndráps. Þeir eru hættulegri samfélaginu. Það á að vera leiðarljós yfirvalda í stríðinu við veiruna en ekki leynd og pukur“ 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar