fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Tjáningarfrelsið má aldrei veikjast! – „Í síauknum mæli brjóta stjórnvöld víða um heim gróflega á tjáningarfrelsinu“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 20. ágúst 2020 15:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eftirfarandi er aðsend grein Bryndísar Bjarnadóttur, herferðastjóra Íslandsdeildar Amnesty International,  þar sem hún vekur athygli á herferð Amnesty International um mikilvægi tjáningarfrelsisins. 

____________________

Tjáningarfrelsið má aldrei veikjast!

Fæst okkar leiðum hugann að réttinum til að mega tjá okkur óhindrað enda getum við Íslendingar gert það óttalaust og án ólögmætra afskipta ríkisvaldsins. Við eigum ekki á hættu, eins og íbúar margra annarra landa, að sæta hörðum viðurlögum fyrir það eitt að tjá hug okkar og taka út margra ára fangavist eða hljóta jafnvel dauðadóm, eins og sum staðar tíðkast.

Samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum eigum við öll rétt á að tjá sannfæringu okkar og skoðanir hvort sem þær eru af pólitískum, trúarlegum, heimspekilegum eða listrænum toga og við megum gera það með ýmsum hætti hvort sem það er í ræðu, riti, tónlist, leik, á netinu eða öðrum opinberum vettvangi.

Við eigum að geta sagt það sem við erum að hugsa, jafnvel þó að það sé óþægilegt eða móðgandi, án þess að eiga á hættu að sæta refsingu af hálfu ríkisvaldsins. Við eigum líka rétt á því að taka við og deila hvers kyns upplýsingum og krefjast umbóta í heiminum.  Þess ber þó að geta að ekki er hægt að njóta tjáningarfrelsisins án ábyrgðar en það má hefta undir vissum kringumstæðum samkvæmt sömu alþjóðalögum. Engu að síður verða allar takmarkanir á tjáningarfrelsinu að varða almannahagsmuni eða réttindi annarra og vera augljóslega nauðsynlegar í þeim tilgangi.

Víða misnota valdhafar hins vegar oft þessi undantekningarákvæði á takmörkun tjáningarfrelsisins til að þagga niður í aðgerðasinnum, fjölmiðlafólki, frjálsum félagasamtökum, listafólki eða stjórnarandstæðingum.

Réttur okkar til tjáningarfrelsis er grunnurinn að því að geta lifað í opnu og sanngjörnu samfélagi og verndun þessa frelsis er nauðsynleg til að við getum dregið valdhafa til ábyrgðar.

Aukin brot á tímum kórónuveirufaraldursins

Í síauknum mæli brjóta stjórnvöld víða um heim gróflega á tjáningarfrelsinu, sérstaklega núna á tímum kórónuveirufaraldursins þegar ráðamenn herða enn frekar kverkatakið á frelsi okkar, jafnvel með nýjum lagasetningum eins og í Ungverjalandi, þar sem þingið samþykkti lög í mars á þessu ári sem kveða á um fimm ára fangelsisvist fyrir að birta falskar eða misvísandi upplýsingar, sem koma í veg fyrir „árangursríka vernd“ almennings eða vekja ótta og kvíða í tengslum við faraldurinn.

Yfirvöld í Egyptalandi, Tælandi, Venesúela, Víetnam og Sómalíu, svo nokkur lönd séu nefnd, hafa einnig ákært fjölda fólks fyrir að „breiða út hatur“, „birta falskar eða villandi upplýsingar“ og „misnota samfélagsmiðla“ í tengslum við kórónuveirufaraldurinn.

Víða annars staðar brjóta ríkisstjórnir á rétti fólks til tjáningarfrelsis ýmist í nafni þjóðaröryggis, almannaheilla, menningararfs, trúar eða baráttunnar gegn hryðjuverkum en hin raunverulega ástæða er oftast sú sama þ.e. að bæla niður friðsamt andóf eða þagga niður í gagnrýni.

Í ársskýrslum Amnesty árið 2019 um Asíu, Afríku, Evrópu, Mið-Austurlönd og Norður- og Suður-Ameríku kemur fram að stjórnvöld á svæðunum hafi beitt sér af mikilli hörku gegn mótmælendum sem kölluðu eftir réttlæti og pólitískum umbótum, ýmist með samkomubanni, handtökum án dóms og laga, fangelsun eða jafnvel aftökum af hálfu lögreglu eða hers.

Bregðast við gagnrýnisröddum

Hvort eða hvernig stjórnvöld bregðast við gagnrýnisröddum eða óhliðhollum skoðunum er oft góð vísbending um hvernig þau sinna mannréttindum almennt í eigin landi.

Í ljósi aukinna brota á tjáningarfrelsinu um heim allan og alvarleika brotanna ákvað Íslandsdeild Amnesty International að ýta úr vör herferðinni Tjáningarfrelsið má aldrei veikjast. Sjaldan hefur verið meiri þörf en nú að standa vörð um tjáningarfrelsið á tímum kórónuveirufaraldursins.

Tjáningarfrelsið má aldrei veikjast! Hlúum að því saman!

Höfundur
Bryndís Bjarnadóttir
Herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið

Bongóblíða á landinu í dag og sumarið handan við hornið
Fréttir
Í gær

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga

Úkraínumenn skutu rússneska sprengjuflugvél niður – Getur þvingað Rússa til breytinga