fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

33 samtök fengu samtals 140 milljónir – Sjáðu listann

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 18. febrúar 2020 14:40

Ásmundur Einar Daðason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrjátíu og þrjú félagasamtök fengu í dag úthlutað styrkjum af safnliðum fjárlaga fyrir samtals tæplega 140 milljónir króna. Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, veitti styrkina en þeim hefur verið úthlutað árlega um langt skeið. Þeir eru veittir til félagasamtaka sem vinna að verkefnum á sviði félags- og velferðarmála.

Í frétt á vef stjórnarráðsins kemur fram að í ár hafi verið lögð sérstök áhersla á verkefni sem lúta að málefnum barna og fjölskyldna. Meðal þeirra eru verkefni á vegum Barnaheilla, Rauða krossins á Íslandi, KFUM og KFUK og styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Einnig voru veittir styrkir til verkefna sem heyra undir önnur málefnasvið félags- og barnamálaráðherra sem lúta m.a. að málefnum fatlaðs fólks, fátækt, geðheilsu, félagslegri virkni og ofbeldi.

„Í ávarpi sínu við úthlutun styrkjanna á Nauthóli í dag talaði ráðherra um það verðmæta starf sem frjáls félagasamtök sinna á degi hverjum í þágu samfélagsins, einkum þau sem vinna að að því að gæta hagsmuna þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu. Þá sagði ráðherra mikilvægt að til staðar sé sjóður til þess að sækja í, bæði til þess að geta viðhaldið góðum verkefnum en ekki síst til þess að geta þróað ný verkefni,“ segir í tilkynningunni.

„Styrkirnir fela í sér mikil tækifæri fyrir frjáls félagasamtök. Frjáls félagasamtök eru afar mikilvæg samfélagi okkar og þróa oft nýjar og góðar hugmyndir eða útfærslur á eldri hugmyndum sem við tileinkum okkur öll í kjölfarið. Frjáls félagasamtök gegna oft burðarhlutverki í ýmsum málaflokkum sem varða heilsu og velferð fjölskyldna á Íslandi og nauðsynlegt er að viðurkenna það góða starf sem þar fer fram og veita því brautargengi“ sagði Ásmundur Einar.

Í frétt ráðuneytisins segir enn fremur að við úthlutanir styrkjanna síðustu ár sé orðin hefð fyrir því að fá valda styrkþega til þess að kynna verkefnin sem þau hljóta styrk fyrir. Að þessu sinni voru kynnt tvö verkefni sem hafa verið í gangi um árabil og reynst vel þeim sem á hafa þurft að halda. Annars vegar er um ræða sumarbúðir KFUM og KFUK fyrir börn með sérþarfir og hinsvegar Systkinasmiðjuna, sem býður upp á sérstök námskeið fyrir systkini barna með sérþarfir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar