fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Skilafrestur og inneignanótur sem renna út á tímum Covid-lokanna

Tobba Marinósdóttir
Föstudaginn 4. desember 2020 15:30

Útsala Kringlan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rúmar þrjár vikur eru nú til jóla og ein stærsta afsláttartíð ársins ný yfirstaðin. Það er því ekki seinna vænna að kynna sér reglur um skilarétt. Gjafabréf og inneignir sem renna út á tímum COVID-lokana eru í skoðun hjá Neytendastofu.

Það gilda ekki endilega sömu reglur þó að um sömu verslun og vöru sé að ræða. Það getur skipt máli hvort hún er keypt á netinu eða í versluninni sjálfri,“ segir Matthildur Sveinsdóttir, sviðsstjóri Neytendasviðs hjá Neytendastofu. Panta og máta „Það er alltaf 14 daga skilafrestur við kaup í gegnum netverslanir hérlendis. Teljast dagarnir frá þeim degi er þú færð vöruna afhenta. Þú ert því öruggari með skilafrest í gegnum vefverslun þar sem kaupandinn hefur ekki sannreynt gæði vörunnar og skoðað hana líkt og í almennri verslun,“ segir Matthildur en þekkt er að fólk sem pantar fatnað vill geta skilað ef flíkin passar ekki og pantar jafnvel tvær stærðir með það fyrir augum að skila því sem ekki passar.

Sendingarkostnaður, þegar vöru er skilað, fellur alla jafna á neytandann og ef um er að ræða innflutta vöru er líklegt að neytandinn hafi greitt virðisaukaskatt af vör-unni en hægt er að sækjast eftir endurgreiðslu virðis-aukaskatts ef sýnt er fram á að varan sé send aftur til seljanda. Matthildur segir skilareglur þegar verslað er á staðnum geta verið á reiki sökum þess að þær séu ekki bundnar í lög, ólíkt 14 daga reglunni. „Til eru viðmiðunarreglur, útgefnar af viðskiptaráðuneytinu árið 2000, sem eru leiðbeinandi en ekki bindandi. Þar er til dæmis talað um að skilareglur gildi ekki um útsöluvörur nema um annað sé samið.“

Snarhækka og lækka Aðspurð um hvað neytendur skuli aðhafast ef grunur leikur á að vara sé hækkuð í verði til að hægt sé að lækka hana aftur á t.d. Black Friday og auglýsa háa afsláttarpró-sentu svarar hún: „Það eru mjög skýrar reglur um að varan þarf að hafa verið seld á því verði sem tekið er fram sem fullt verð. Ekki dugir að hún hafi verið seld á fullu verði í einn eða tvo daga áður en afsláttarverðið er sett á heldur þarf „fyrir“-verðið að geta flokkast sem fast verð vörunnar.“  Er þá átt við að bók sem kostar almennt 4.990 en er á afslætti á 2.500 má ekki hafa verið á háa verðinu í örstutta stund áður. „Meta þarf hvert tilvik og verðsveiflurnar og hve langan tíma varan er á fullu verði og hve langan tíma á afslætti. Það þarf að vera skýrt að verið sé að veita raunverulegan afslátt.“

Matthildur segir Neytendastofu vilja fá ábend-ingar gruni fólk að verið sé að brjóta á rétti þess. „Við viljum fá þessar ábendingar til okkar og við getum þá krafist skýringar frá fyrir-tækinu. Það eru dæmi um að fyrirtæki hafa brotið gegn þessum reglum en svo hefur það líka gerst að verðmunurinn á sér eðlilegar skýringar,“ úrskýrir Matthildur og segir ábendingafjölda milli ára vera svipaðan þrátt fyrir að innkaupahegðun fólks hafi breyst mikið sökum faraldursins.Inneignir og lokanir Aðspurð um hvaða rétt neytendur hafa sem eiga inneignarnótur eða gjafabréf sem renna út á tímum samkomutakmarkana og lokana með þeim afleiðingum að neytendur geta ekki nýtt inneignina, segir Matthildur að slík mál hafi ekki komið inn á borð Neytendastofu.

Inneignanótur

Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segist vera með slíkt tilvik í skoðun. „Við höfum fengið nokkur mál þar sem nótuhafi getur ekki keypt vöru/þjónustu vegna Covid-takmarkana og inneignarnótan er að renna út. Afstaða NS er að söluaðila beri að framlengja inneignarnótuna. Allir hafa hingað til orðið við því. Erum þó að bíða eftir svari frá einu hóteli, sem er að skoða málið,“ segir Breki og lofar frekari fréttum þegar niðurstaða fæst.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar