fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp – Ég vildi vernda mömmu frá rasismanum

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 18. desember 2020 13:00

Margir segjast hafa upplifað mismunun þegar þeir sækja sér aðstoð hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar, hefur ekki tjáð sig undanfarna daga. MYND/SAMSETT

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöldi fólks hefur stigið fram og greint frá rasisma og annars konar mismunun hjá Fjölskylduhjálp Íslands. Málið er tekið alvarlega innan Reykjavíkurborgar og kallar fjölmenningarráð eftir svörum.

„Ég var svakalega spennt að mæta sem sjálfboðaliði. Þarna mættu mér svo þrír, fjórir öfgarasistar sem eru fastir sjálfboðaliðar. Ég var þarna ásamt einni annarri útlenskri konu og við bara frusum við að hlusta á þær,“ segir ung kona af marokkóskum uppruna sem mætti til Fjölskylduhjálparinnar í vor. Konan er ein þeirra sem komu á fund fjölmenningarráðs Reykjavíkurborgar í vikunni og lýstu reynslu sinni af Fjölskylduhjálp.

Hún er í Háskóla Íslands þar sem hún tók valkúrs í sjálfboðaliðastarfi og var þar hvött til að sækja um hjá ýmsum stöðum, og var Fjölskylduhjálp sérstaklega nefnd sem góður möguleiki. „Það var skelfilegt að heyra hvernig nokkrar eldri konur þarna töluðu um útlendinga. Ein þeirra fór síðan að gera grín að nafninu mínu og reyndi að fá aðra til að taka undir og hlæja með,“ segir konan sem síðar hafði samband við Ásgerði Jónu Flosadóttur, formann Fjölskylduhjálparinnar, til að upplýsa hana um rasismann sem hún varð vör við meðal annarra sjálfboðaliða. „Ég bjóst við að hún segðist ætla að skoða málið en hún fór strax í vörn, sagði engan rasisma hjá Fjölskylduhjálpinni og neitaði meira að segja að hafa haft sjálfboðaliða hjá sér af erlendum uppruna, eins og hún væri að neita að ég hefði verið sjálfboðaliði hjá þeim.“

Sögurnar safnast saman

Fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar fékk á fund sinn í vikunni fjölda aðila sem miðluðu reynslu sinni af Fjölskylduhjálp. Í kjölfarið sendi ráðið frá sér sameiginlega bókun þar sem óskað er eftir því að Fjölskylduhjálp Íslands skili greinargerð um hvernig unnið sé gegn mismunun þar. Fyrrverandi sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands kom fram í viðtali hjá Stöð 2 í síðustu viku og sagðist hafa ákveðið að hætta að starfa með samtökunum eftir að hún hefði orðið vitni að mismunun á grundvelli trúarbragða við úthlutun matvæla.

Þá hafði Stöð 2 rætt við fleiri fyrrverandi og núverandi skjólstæðinga sem saka formanninn um niðurlægjandi framkomu gagnvart sér. Sömuleiðis hefur Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir, formaður Pepps sem eru samtök fólks um fátækt, sagst hafa fengið niðurbrotna skjólstæðinga Fjölskylduhjálparinnar til sín.

Í framhaldi af þessum fréttaflutningi sendu Samtök kvenna af erlendum uppruna (W.O.M.E.N) frá sér yfirlýsingu þar sem þau hvetja Reykjavíkurborg til þess að krefjast rannsóknar á starfsemi góðgerðasamtakanna Fjölskylduhjálpar og draga til baka fjárstuðning frá borginni ef Fjölskylduhjálp starfar ekki í samræmi við mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar.

Fjölskylduhjálp sendi síðan frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að 58 prósent skjólstæðinga hennar séu af erlendum uppruna og því hafnað að nokkur mismunun eigi sér þar stað.

Skammaðist mín

Unga konan sem fór sem sjálfboðaliði úr kúrsinum í HÍ til Fjölskylduhjálpar segist hafa fengið orkudrykki, gos og snarl fyrir framlag sitt. Þegar mamma hennar, sem er öryrki, frétti af því vildi hún einnig gerast sjálfboðaliði því hún hafði vart efni á mat.

„Ég skammaðist mín svo fyrir að hafa verið spennt fyrir að gerast sjálfboðaliði þarna að ég sagði henni ekki frá rasismanum. Mamma er líka stolt af sínum uppruna en ég hvatti hana til að sleppa því að fara þangað. Mér fannst ég þurfa að vernda hana og hafði áhyggjur af því að hún yrði lögð í einelti ef hún færi í Fjölskylduhjálpina sem sjálfboðaliði,“ segir hún.

Konan vildi koma fram nafnlaust af ótta við hefndaraðgerðir Ásgerðar Jónu en Ásgerður nafngreindi skjólstæðing Fjölskylduhjálpar í beinni útsendingu í þættinum Í bítið á Bylgjunni fyrir þremur árum eftir að konan hafði nafnlaust í viðtali við DV lýst yfir vonbrigðum vegna jólahjálpar Fjölskylduhjálparinnar.

Það var síðan ekki fyrr en nýlega sem hún tilkynnti kennaranum sínum úr HÍ um viðmótið en þá hafði hún heyrt fleiri viðlíka sögur eftir að hafa fyrst haldið að hennar upplifun væri undantekning.

Öruggari með hvítri systur

DV ræddi einnig við aðra unga konu sem hefur þurft að leita til Fjölskylduhjálpar vegna fátæktar og upplifað mismunun vegna húðlitar. Konan er ríflega þrítug, tveggja barna móðir, ættuð frá Suður-Ameríku og Afríku og var ættleidd inn í hvíta fjölskyldu á Íslandi. „Systir mín er hvít og ég reyndi að fara með henni þegar ég var að sækja mataraðstoð til Fjölskylduhjálparinnar því þá fannst mér ég vera öruggari,“ segir hún.

Hún segist hafa upplifað mikinn hroka og dónaskap, og heyrt sjálfboðaliða tala illa um konur með blæjur. „Í eitt skiptið sagði ein konan: „Ekki setja svona mikið hjá henni,“ en ég veit ekki alveg hvort hún átti við mig eða múslimska konu sem var við hliðina á mér. Kannski héldu þær að ég skildi ekki íslensku. Ég hef líka heyrt hvernig tónninn er í röddinni hjá sumum sjálfboðaliðunum þegar einhver sem talar íslensku kemur. Það er allt annað viðmót.“

Hún rifjar upp eitt skiptið þegar hún hafði gleymt að sækja um úthlutun, og systir hennar hringt og sagt henni bara að drífa sig. „Hún hafði þá líka gleymt því en fór til Fjölskylduhjálparinnar og fékk matarúthlutun. Ég lagði strax af stað en þegar ég kom mætti ég bara dónaskap. Það var ekki fyrr en ég nefndi íslenskt nafn systur minnar að það breyttist,“ segir hún.

Konan segist enn þurfa á mataraðstoð að halda en tvö ár séu síðan hún hætti að fara til Fjölskylduhjálparinnar. „Ég fer frekar til Mæðrastyrksnefndar því þær eru almennilegar og koma fram við mig eins og ég sé manneskja en ekki, tja, brún manneskja. Ég var farin að upplifa mikinn kvíða í hvert sinn sem ég fór í Fjölskylduhjálpina en það er allt annað að fara til Mæðrastyrksnefndar. Þær sýna manni virðingu,“ segir hún.

Of upptekin fyrir viðtal

Blaðamaður DV fór á úthlutun Fjölskylduhjálparinnar í vikunni og spurði eftir Ásgerði Jónu en hún var þá baka til og vildi ekki koma og ræða við blaðamann. Sjálfboðaliði á staðnum sagðist mjög ósáttur við þá gagnrýni sem hefur birst í garð Fjölskylduhjálparinnar að undanförnu, sagði það algjöra firru að þar liðist nokkur mismunun.

Í símtölum til Fjölskylduhjálparinnar fengust þau svör að Ásgerður Jóna væri of upptekin við úthlutanir til að veita viðtal.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar