fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fréttir

Nýtt myndband Samherja – Segja Jóhannes hafa verið einan að verki

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 14. október 2020 09:35

Jóhannes Stefánsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Jóhannes Stefánsson, sem stýrði starfsemi Samherja í Namibíu, hafði sumarið 2016 uppi áform um að fara á bak við Samherja og hefja rekstur í Namibíu með öðru útgerðarfyrirtæki og nýta sér þau viðskiptasambönd sem félög tengd Samherja höfðu byggt upp í landinu. Í þessum þætti er í fyrsta sinn greint opinberlega frá þessum áformum. Eftir starfslok Jóhannesar fundust ítarleg minnisblöð sem Jóhannes hafði ritað við ýmis tilefni þau ár sem hann stýrði starfseminni í Namibíu. Ekkert í dagbókum Jóhannesar styður þær fullyrðingar sem hann setti fram í þættinum Kveik á RÚV 12. nóvember 2019. Raunar hafa ekki fundist nein önnur gögn sem styðja þær heldur en búið er að yfirfara meira en milljón skjöl í tengslum við rannsókn á starfseminni,“ segir í fylgitexta með nýju myndbandi frá Samherja.

Þar er um að ræða stutta stiklu sem kynntir væntanlegt myndband þar sem Samherjamenn gera Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmann sinn, að skotmarki. Jóhannes var uppljóstrari í fréttaskýringaþættinum Kveiki þar sem hann lýsti meintum mútugreiðslum Samherja til ráðamanna í Namibíu í skiptum fyrir hrossamakrílkvóta. Sagðist Jóhannes hafa annast greiðslurnar í samráði við Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, en í myndbandinu er því haldið fram að Jóhannes hafi verið einn að verki og aðrir stjórnendur fyrirtækisins hafi ekki vitað um greiðslurnar. Námu þær samtals um hátt í einn milljarð íslenskra króna.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi