fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

60 ný smit og virk smit yfir 1.000 í fyrsta sinn síðan í apríl – Kári vill loka skólum og veitingastöðum

Heimir Hannesson
Sunnudaginn 11. október 2020 13:45

mynd/samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sextíu ný smit greindust innanlands í gær og hafa þau ekki verið færri síðan á sunnudaginn í síðustu viku. Fjöldi staðfestra smita á Íslandi er þá jafnframt skriðinn yfir 3.500, eða 3.526, nákvæmlega. 2.499 hafa fengið Covid-19 og náð sér. 25 eru á sjúkrahúsi og 3 í gjörgæslu.

Samkvæmt tölum á covid.is eru 3.916 manns í sóttkví, og aðrir 1.666 í skimunarsóttkví.

Þó tölur gærdagsins séu lægri en verið hefur þessa vikuna er óvíst hvort lát sé á hinni svokallaðri þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins. Gripið var til mjög hertra aðgerða fyrir um það bil viku síðan og sögðu heilbrigðisyfirvöld við það tækifæri að skoða yrði eftir 1-2 vikur hvort aðgerðirnar væru að skila árangri. Þannig er ljóst að tölurnar næstu daga munu miklu máli skipta þegar taka á ákvörðun um framhald á hertum aðgerðum.

Kári Stefánsson þarf reyndar ekki að bíða eftir næstu dögum, því í útvarpsþættinum á Sprengisandi á Bylgunni í morgun sagðist Kári vera ósáttur við núverandi fyrirkomulag sóttvarnatakmarkana. Sagði Kári að hann hefði sjálfur gengið mun lengra. Kári sagði að prísinn væri vissulega hár á þeim takmörkunum. Hann væri raunar svo hár að væri ekki réttlætanlegt að ganga ekki enn lengra og loka veitingahúsum og skólum. Þannig væri tekin óþarfa áhætta með þá miklu fjárfestingu sem samkomutakmarkanir væru.

Kári sagði jafnframt að ekkert benti til þess að smit hafi borist inn í landið eftir að tvöföld skimun hafi verið tekin upp á landamærunum. Smitin sem nú séu á sveimi séu rekjanleg til ferðamanna sem komu til landsins áður en tvöfalda skimunin var tekin upp. Kári sagði að lokum veiruna þrjóska, en ólíklegt að hún breyti um hegðun.

„Ég held að veiran sé söm við sig, ég held að hún sé þrjósk og sé ekkert að breyta um hegðun. Hins vegar ber að geta að ef hún stökkbreytist á þann hátt að hegðun hennar breytist þá eru yfirgnæfandi líkur á því að hún verði skaðminni en meira smitandi,“ sagði Kári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést

Slysið í Danmörku: Minnast Íslendingsins sem lést
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“

„Sonur minn var því miður ekki sá eini“
Fréttir
Í gær

Fannst látinn við Háafoss

Fannst látinn við Háafoss
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Í gær

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín

Þrír handteknir eftir að þeir neituðu að gefa upp nöfn sín
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“

Sjö ára drengur festist í frárennsli sundlaugar og drukknaði á afmælisdaginn – „Barðist eins og ljón“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu

Íslendingar sviknir um milljónir á Kanarí – Tryggingafélag varar við læknastofu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar

Tveir af hverjum þremur á fjárhagsaðstoð í Reykjavík eru útlendingar