fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Fréttir

Lögreglukonu misboðið – Dómharkan aldrei verið meiri

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 19. maí 2020 21:30

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eyrún Eyþórsdóttir, lektor í lögreglufræði við Háskólann á Akureyri og lögreglumaður segir að störf lögreglu sé lítið metin, það sjáist hvað best á laununum. Þetta kemur fram í pistli sem birtist á Vísi í dag. Hún vísar til launaseðils sem lögreglumaður deildi á dögunum sem sýndi 300. 000 krónur fyrir fulla vinnu.

„Á dögunum deildi lögreglumaður launaseðli sínum á samfélagsmiðlum. Launaseðilinn sýndi að viðkomandi, sem hefur margra ára starfsreynslu í lögreglunni, fékk rétt um 300 þúsund í útborguð laun fyrir fulla vinnu mánuðinn á undan. Ég staldraði aðeins við þennan launaseðil og fann að mér var algjörlega misboðið. Þarna hafði lögreglumaður fengið skýr skilaboð um hversu ómerkilegt starf hans væri. Það má að minnsta kosti leiða að því líkur að það sé viðhorf ríkisins því laun lögreglumanna eru í alls engu samræmi við starfið sjálft.“

„Lögreglumenn þurfa nánast að vera ómannlegir“

Eyrún segir að lögreglustarfið sé erfiðara en nokkru sinni fyrr og telur upp fjölda atriða sem lögreglumenn þurfa að vera færir um að sinna.

„Þegar umræðan um að færa lögreglunám upp á háskólastigið, líkt og hafði verið gert á flestum Norðurlöndum, var að hefjast töluðu lögreglumenn með þessari hugmynd sem og Landssamband lögreglumanna sem var í forsvari fyrir henni. Lögreglumennirnir sjálfir höfðu nefnilega besta skilninginn og mestu innsýnina í þær miklu breytingar sem höfðu átt sér stað á starfsumhverfi þeirra í gegnum tíðina. Verkefni lögreglunnar höfðu orðið bæði flóknari og erfiðari en nokkurn tímann áður. Þá höfðu kröfur samfélagsins til lögreglunnar aukist mikið. Lögreglumenn samtímans þurfa að búa yfir yfirvegun og ró, vera hraustir á líkama og sál, hafa seiglu, vera með afburðar samtalstækni, búa yfir góðri tækni- og verkkunnáttu, geta tekið stórar ákvarðanir á stuttum tíma, þekkja lög og reglur, haldið við lífsmörk deyjandi manneskju, geta varið sig í hættulegum aðstæðum og tryggt öryggi allra annarra, svo fátt eitt sé upptalið. Þeir vinna dag og nótt sé þess þörf við að leysa alvarleg sakamál, gæta hagsmuna landsmanna í brjáluðum veðrum eða rekja ferðir fólks svo hægt sé að stöðva veirufaraldur.“

Eyrun segir að kröfurnar séu meiri og að lögregluþjónar þurfi að vera ómannlegir. Almenningur ætlist til þess að þau leysi vandamál sem eru utan lögbundinnar skyldu.

„En til viðbótar þurfa lögreglumenn nánast að vera ómannlegir og þola þrýsting frá samfélaginu í fjölmörgum ólíkum birtingarmyndum. Almenningur upplifir oft að lögreglumenn eiga að geta leyst öll mál jafnvel þó verkefnið hafi ekkert með lögbundið hlutverk lögreglu að gera. Kröfurnar til lögreglunnar eru miklu meiri í dag heldur en nokkurn tímann áður. Dómharkan sömuleiðis eins og mörg dæmi sýna þar sem lögreglumenn, og í sumum tilfellum fjölskyldur þeirra, hafa þurft að líða áreiti, ofbeldi og jafnvel myndbirtingar í fjölmiðlum að ósekju vegna vinnu sinnar.

Með einskærum metnaði hafa lögreglumennirnir, með því að mennta sig og endurmennta, sækja námskeið og efla sig faglega, tekið þátt í að uppfæra löggæslu í takt við flókinn samtímann. Í dag stundar fólk tveggja til þriggja ára háskólanám til þess að fá að starfa við fagið. Starfið telst vera það flókið í samtímanum að ekki aðeins grunnháskólanám dugi til í sumum tilfellum, heldur sækja lögreglumenn sér í auknum mæli framhaldsmenntun á háskólastigi vegna mikillar sérhæfingar innan lögreglunnar. Þetta er allt gert til þess að almenningur geti fengið bestu fáanlegu þjónustu þegar þörf er á aðkomu lögreglu.“

Hvetur ráðafólk til að prófa starfið

Eyrún leggur til að ráðamenn prófi að fara á vakt hjá lögreglu. Hún nefnir nokkur erfið verkefni sem það gæti þurft að takast á við og telur að lögreglan myndi taka vel á móti þeim.

„Það er sorglegra en tárum taki að þeir sem ráða launakjörum lögreglumanna virðist vera algjörlega sama um þjónustustuðul lögreglu, fagmennsku lögreglumanna og að hægt sé að bjóða upp á löggæslu sem stenst nútímakröfur og væntingar. Það getur ekki verið önnur skýring á arfaslökum launakjörum lögreglumanna en hreinlega að launagreiðandinn hafi ekki hugmynd um hvað starfið felur í sér.

Kannski væri það ákjósanlegt að ráðamenn þjóðarinnar prófuðu að fara á vakt hjá lögreglu. Vaktin gæti verið á annasömum degi á höfuðborgarsvæðinu, þar sem mögulega þyrfti að koma að ungri manneskju látinni sökum ofneyslu vímuefna eða taka á móti tilkynningu barns um kynferðislega misnotkun af hendi náins ættingja. Vaktin gæti líka verið á landsbyggðinni þar sem væri einn lögreglumaður sem kæmi að alvarlegu umferðarslysi tveggja bifreiða þar sem látið og mikið slasað fólk er til staðar og engin aðstoð fáanleg næstu klukkustundirnar. Mögulega væri hægt starfa í rannsóknardeild í einn dag og eiga við þann frumskóg af tæknilegum forsendum sem þarf að skilja til að geta leyst mál þar sem nektarmyndir af ungri manneskju hefur farið í dreifingu á netinu.

Ég er viss um að starfandi lögreglumenn tækju vel á móti ykkur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði

Barnaskólakennari drap manninn sinn og gróf líkið úti í garði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“

Allt vitlaust út af brottrekstri Maríu Sigrúnar úr Kveik og kollegar grípa til varna – „Eru þau ömurlegu orð Ingólfi Bjarna til ævarandi minnkunar“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu

Guðmundur Felix kastar inn handklæðinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur

Viktor er óvænti forsetaframbjóðandinn: Safnaði 1.500 meðmælendum nánast í kyrrþey – Kostnaðurinn aðallega tími,bensín og sjoppusamlokur