fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fréttir

Bjössi í World Class „hundfúll“ með að fá ekki að opna: Telur ákvörðunina vera pólitíska

Auður Ösp
Mánudaginn 4. maí 2020 17:46

Björn Leifsson. Fréttablaðið/GVA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við erum ekki bar með drukkna aðila, og það eru sömu aðilar sem koma hérna inn og labba inn í Bónus. Ég skil ekki hver munurinn er á því að snerta fleti í Bónus heldur en að koma hérna til okkar,“ segir Björn Leifsson eigandi og forstjóri World Class en líkamsræktarstöðvar landsins hafa ekki fengið leyfi til að opna á ný þann 18.maí næstkomandi, samhliða sundlaugum. Björn segist tapa 75 milljónum króna á viku á meðan lokunin stendur yfir.

Þór­ólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna fyrr  í dag að ákveðið hefði verið að leyfa opnun á sundlaugum í ljósi þess að til­tölu­lega fá smit virðist vera í gangi núna.

Í samtali við Reykjavík síðdegis bendir Björn, einnig þekktur sem Bjössi í World Class, á að það eru mun fleiri líkamsræktarstöðvar heldur en sundlaugar á Íslandi. „Áður en það var lokað þá var nóg pláss fyrir alla. Og ég veit ekki til þess að nein smit hafi verið rakin inn á líkamsræktarstöðvarnar. Ég hef ekki heyrt af því. Ég sé ekki muninn á sundi og líkamsrækt í þessum efnum. Þar fyrir utan, þá var búið að tilkynna áður að sund og líkamsrækt yrðu ekki slitin í sundur,“ segir og bætir við:

„Ég er alveg hundfúll að sjálfsögðu. Við erum búin að taka virkan þátt í þessu með teyminu, og með landsmönnum, bæði fyrir og eftir lokun, og við héldum að við myndum fá að njóta þess, með því að opna á sama tíma og aðrir.“

World Class keðjan er sú stærsta á landinu og rekur fjölmargar líkamsræktarstöðvar. Aðspurður um tapið sem orðið hefur vegna samkomubannsins svarar Björn: „Ef ég hefði fengið að opna þann átjánda, þá hefði það ekki verið nema 600 milljónir. En það virðist ætla að verða meira.  Talan eykst um 75 milljónir fyrir hverja viku sem er lokað.“

Þá segir Björn að World Class fái engar bætur vegna tapsins: „Við fáum engar bætur, við erum skikkuð til að loka. Við fáum þessa 75 prósent launaleið. Sama með leigusalana okkar, þeir gefa ekki tommu eftir. Jafnvel þó við megum ekki nota húsin sem við erum að leigja af þeim þá verðum við samt að borga fulla leigu. Það eru einhverjar smá tilfærslur á leigunni, en engir afslættir.“

Töff að fá 600 milljón króna högg

Björn telur að hér sé um að ræða geðþóttaákvörðun stjórnvalda.

„Ég myndi fallast að því að þetta sé hreinlega bara pólitík. Það eru einhverjir sem þrýsta meira á það að komast í sund heldur en í líkamsrækt. Ég veit ekki hver það er, eða hverjir, en það er greinilegt að það er eitthvað svoleiðis sem er þarna á milli.“

Björn segir höggið vera mikið fyrir fyrirtækið en World Class standi þó betur að vígi en mörg önnur fyrirtæki.

„Það tekur náttúrulega einhvern tíma að vinna þetta niður. Mitt fyrirtæki stendur nokkuð vel en ég hugsa að þetta sé mjög erfitt fyrir mörg fyrirtæki. Auðvitað er það töff að fá 600 milljón króna högg, en það er örugglega verra fyrir margra aðra  en mig. Ég get ekkert kvartað, ég fæ þó væntanlega traffík ef þeir leyfa mér að opna einhvern tímann. En ferðaþjónustan er í miklu verri stöðu ef túristarnir koma ekki.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Ísak keyptur til Köln
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Banaslys við Hvítá – 10 ára drengur lést

Banaslys við Hvítá – 10 ára drengur lést
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum

Réttarhöldin yfir Ymi Art framundan – Ákærður fyrir að hafa myrt móður sína með 22 hnífstungum