fbpx
Laugardagur 07.júní 2025
Fréttir

„Ég hef farið í heimilisofbeldismál sem hefur endað í andláti“

Jón Þór Stefánsson
Þriðjudaginn 28. apríl 2020 21:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Kveik í kvöld var fjallað um heimilisofbeldi, sem virðist hafa færst í aukanna vegna samkomubannsins, eða um 10% hér á landi samkvæmt nýjustu tölum. Margir þættir spila inn í, þar má fyrst og fremst nefna einangrunina og möguleikann á aukinni áfengis og vímuefnaneyslu.

Í þættinum er minnst á að tvær konur hafi verið myrtar á heimilum sínum á stuttum tíma og að í báðum tilfellum liggi grunur um að heimilisofbeldi hafi spilað stórt hlutverk.

Hafþór Gauti Kristjánsson, varðstjóri lögreglunnar segir að heimilisofbeldi sé oft ólíkt því sem fólk heldur. Oft sé ofbeldið ekki á milli maka, heldur börn að meiða foreldra eða systkini að slást.

„Heimilisofbeldi er kannski ekki eins og fólk heldur, að einhver sé að lemja maka sinn, eða ganga í skrokk á honum. Oft eru þetta börn að ganga í skrokk á foreldrum, systkini að slást, það er mjög algengt. Þetta er bara allskonar.“

Þá segir Hafþór að heimilisofbeldi sem á sér stað um miðjan dag virðist vera að færast í aukanna, en oftast eigi það sér stað á nóttunni. Hann ræddi einnig um erfiðustu málin.

„Við erum alveg að lenda í því að það eru slagsmál á heimilum og við þurfum að slíta fólk í sundur. Það eru hnífar á öllum heimilum og ég hef lent í því að það hefur verið tekið á móti mér með hníf.“

„Ég hef farið í heimilisofbeldismál sem hefur endað í andláti. Það er svona botninn“

Andrés Proppé Ragnarsson, sálfræðingur talaði um ástæður þess að kynferðisbrot færast í aukanna á COVID-tímum. Hann sagði að eftirspurn á meðferðum hefði stóraukist.

„Það verður bara meiri kvíði, meiri spenna, núna meiri innilokun, meiri samvera, ofsalega mikið óöryggi og fólk veit ekki hvað er fram undan.“

„Það að hafa verið beittur ofbeldi sem barn er engin afsökun. Það gefur þér ekkert leyfi til að lemja neinn, ef þú hefur verið laminn. Ofbeldi er bannað, það bara liggur fyrir.“

Þá greindi Ágústa Ágústsdóttir frá ofbeldissambandi sem hún var í, í heil fjórtán ár. Hún hafi verið dregin aftur og aftur í sambandið á samviskubiti og niðurbroti.

„Öll þessi rifrildi, lygarnar náttúrulega alveg svakalegar, minnstu smáhlutir, alltaf stóð maður samt sem áður í hárinu á honum sem endaði alltaf þannig að maður brotnar, maður fer inn og svo grætur hann, kemur, skríður, fyrirgefðu, elskan mín, ég ætlaði ekki að gera þetta, ég bara elska þig svo mikið, ég er bara svo hræddur um að þú farir frá mér, eða þú misskildir mig og þú ert miklu klárari en ég að tjá þig.“

„Meðvirknin hún laðar að sér ofbeldismann. Meðvirkni og ofbeldi, þetta er svona einn eitraður kokteill og þú getur fyrirfundið og svo mallar sambandið og þetta verður einhver drullupollur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur

Rekinn úr starfi hjá ríkinu vegna lélegrar frammistöðu – Fór í mál en fær ekki krónu í bætur
Fréttir
Í gær

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“

Sigmar boðar breytingar: „Minn­ing­in um lok­un­ina síðasta sum­ar er enn í fersku minni“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“

Jón tekur upp hanskann fyrir múslimana á Keflavíkurflugvelli – „Sé ekki að þessir karlangar hafi brotið neitt af sér“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“

Húsfélagið í vanda vegna þess að einn „nískupúki“ stöðvar allt – „Hann mætir á enga húsfundi og vill aldrei staðfesta neinar framkvæmdir“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust

Hinn grunaði í máli Madeleine segist ætla að láta sig hverfa í haust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“

Flaug til Íslands með stútfullt kælibox af mat – „Þetta sparaði okkur stórfé“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“

Íbúar að verða trylltir á dularfullu „djöflablístri“ við Hallgerðargötu – „Búið að halda fyrir mér vöku síðustu tvær nætur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð

Netverjar keppast við að hringja í númerið sem sendi Semu Erlu þessi viðbjóðslegu skilaboð