fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Sólveig lýsir grafalvarlegum aðstæðum gamals fólks á COVID tímum – „Berjast fyrir sérstöku brandaraálagi“

Jón Þór Stefánsson
Sunnudaginn 5. apríl 2020 21:49

Sólveig Anna Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sólveig Anna, formaður Eflingar birti í dag pistil á Facebook-síðu sinni. Þar fjallaði hún um spjall sitt við konu sem vinnur við að aðstoða gamalt fólk. Konan sagði við Sólveigu að hún lærði nýjan brandara á hverjum degi til þess að gleðja gamla fólkið.

„Ég ræddi við konu fyrir nokkrum dögum, félagsmann í Eflingu sem vinnur við að aðstoða og hjálpa gömlu fólki. Ég spurði hana hvernig gengi. “Það gengur ágætlega, en gamla fólkið er orðið þreytt. Allt félagsstarfið þeirra hefur fallið niður. Og þau borðuðu saman en nú er það ekki hægt. Sum fá enga heimsókn nema mig. Þannig að ég læri núna nýjan brandara á hverjum degi. Á morgnana áður en ég fer að vinna skoða ég barandarasíður á Facebook og legg svo einn brandara á minnið. Það er gott fyrir okkur að hlæja saman.“ „En frábært hjá þér“, sagði ég, „við þurfum kannski að fara að berjast fyrir sérstöku brandaraálagi í kjaraviðræðum“.“

Sólveig sagðist vera stolt að því að tilheyra sömu stétt og konan, en döpur yfir þeirri þungu byrgði sem COVID-19 faraldurinn hefur á fólk. Þá minnist hún orða ónefnds manns frá því á fundi í vetur um að konur sem sinni umönnun búi ekki til hagvöxtinn.

„Þegar hún sagði mér frá deginum sínum varð ég stolt og glöð yfir því að tilheyra sömu stétt og hún, stétt láglaunakvenna sem vinna við að annast annað lifandi fólk, en líka döpur; yfir þeim byrðum sem þessi hræðilegi faraldur leggur á fólk, yfir því að í samfélaginu okkar er gamalt fólk sem er algjörir einstæðingar og yfir því að konan sem lærir nú brandara á hverjum degi til að færa fólki aðeins meiri birtu í lífið sitt tilheyrir hópi þeirra lægst launuðu á íslenskum vinnumarkaði. Konan sem ég talaði við vinnur hjá sveitarfélagi á höfuðborgarsvæðinu, þar sem hálaunafólk fer með völd, hálaunafólk sem trúir því að starfsfólk sveitarfélaganna, fólkið í umönnunarstörfunum, fólkið sem vinnur við að þrífa og ræsta, fólkið sem tekur sorpið „búi ekki til hagvöxtinn“ eins og það var orðað á einum samningafundi af fínum manni fyrr í vetur. Og þessvegna sé í lagi að hafa þau á smánarlegum launum. Og ekki aðeins í lagi, heldur einfaldlega skylda ábyrgra stjórnenda sem vita hvað er þess virði að setja peninga í og hvað ekki.“

Sólveig segist furða sig á því að umönnunarstörf séu lítið metin í samfélaginu, en hún segir ástæðuna vera að hlutir eins og mýkt, mildi og mannúð séu ekki skoðaðir sem eitthvað sem skipti máli.

„Stundum finnst mér svo ótrúlegt að mikill fjöldi þeirra sem sinna umönnunar og tilfinningavinnu á Íslandi tilheyri hópi þeirra lægst launuðu á vinnumarkaðnum. En oftast finnst mér það bara rökrétt niðurstaða; mýkt, mildi og mannúð hafa verið gerð útlæg úr öllum útreikningum um hvað skiptir máli, það að sýna að þú hugsir stöku sinnum um eitthvað annað en hagvöxtinn er ekki í boði, ef þú vilt ráða þarftu að sýna að þú vitir að niðurstaðan í reikningsdæminu verði alltaf að vera sú sama og alltaf fyrirfram gefin: Þau sem vinna við að passa upp á annað lifandi fólk eru því sem næst einskis virði.“

„Ég vona að við getum komist sem allra fyrst af þeim stað að samþykkja að þetta sé niðurstaða hinna samfélagslegu útreikninga. Það má einfaldlega ekki bíða lengur. Sjálfsvirðing okkar sem mannfólks getur ekki leyft það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Í gær

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Í gær

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks
Fréttir
Í gær

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu

Gamlir geisladiskar nýttir í tölvuframleiðslu
Fréttir
Í gær

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás

Fékk skilorð fyrir ofsafengna sveðjuárás