fbpx
Þriðjudagur 08.júlí 2025
Fréttir

Alexandra Briem gagnrýnir handtöku fánabrennaranna

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 4. september 2019 15:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir menn voru handteknir fyrir að kveikja í bandaríska fánanum við Sæbraut snemma í eftirmiðdaginn. Með þessu voru mennirnir væntanlega að mótmæla komu Mike Pence, varaforseta Bandaríkjanna, hingað til lands.

Alexandra Briem, borgarfulltrúi Pírata, gerir alvarlegar athugasemdir við handtökuna og spyr hvort fólki sé ekki leyfilegt að mótmæla. Hún minnir á að rétturinn til að mótmæla sé varinn í bandarísku stjórnarskránni.  Færsla hennar á Facebook um málið er svohljóðandi:

Síðan hvenær er fólk handtekið fyrir að mótmæla?

Meira að segja í Bandaríkjunum er stjórnarskrárvarinn réttur til tjáningar, meira að segja mótmælum með fánabrennum, eins og var staðfest af þarlendum hæstarétti 1969. Þó er hægt að kæra fyrir ógætilega meðferð elds, en það hlýtur að teljast augljós fyrirsláttur ef það er notað til að koma í veg fyrir tjáninguna, á stað þar sem ekki er hægt að tala um raunverulega hættu á að eldurinn dreifi úr sér. (og þó svo ætti að kæra fyrir það, þá mætti alveg gera það eftir mótmælin en ekki nota það til að stoppa þau.)

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ný könnun sýnir djúpa gjá á milli vestur- og austurhluta Reykjavíkur – Sjálfstæðisflokkurinn höfðar ekki til ungra kjósenda

Ný könnun sýnir djúpa gjá á milli vestur- og austurhluta Reykjavíkur – Sjálfstæðisflokkurinn höfðar ekki til ungra kjósenda
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana

Taldi sig vera í ástarsambandi við Chat GPT botta – Réðist á lögreglumenn og var skotinn til bana
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

Húsleitir og handtökur vegna skipulagðrar glæpastarfsemi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“

Áráttufullur perri í Reykjavík olli konum skelfingu – „Chupa Chupa“