fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Argur á Hinsegin dögum

Svarthöfði
Laugardaginn 10. ágúst 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfða hreinlega leiðist fordómafólk, þótt hann vilji taka sér það bessaleyfi að segjast vera sjálfur með grimma fordóma gagnvart fordómafólki. Hann er hreinlega kominn með upp í kok af fólki sem misbýður LGBT+ samfélagið og líferni þess.

Trans- eða hómófóbískt fólk finnst víða og finnst mörgum hreinn viðbjóður að hugsa til kynleiðréttinga eða samræðis samkynhneigðra – svo mikið að enn eru óskiljanlega framdir glæpir gegn hópum að tilefnislausu  árið 2019!

Þarna vaknar eingöngu upp sú gamla spurning: Hvern er verið að særa? Hvernig hefur það áhrif á þinn dag, þinn heimavöll eða þína tilvist?

Tökum Rússland sem dæmi. Það var ekki fyrr en árið 1993 að samkynhneigð var afglæpavædd þar, en ofsóknir gegn hópum eru enn afar ríkjandi og fordómar gríðarlegir. Þú kennir auðvitað ekki gömlum hundi að sitja, en ef þú getur ekki kennt honum að halda kjafti, þarf þá því miður að svæfa hann.

Svarthöfði leyfir að vísu ekki kyni að skilgreina sig, en á móti er hann í engri aðstöðu til þess að setja út á hátterni annarra þegar hann er sjálfur umlukinn svörtum glansfatnaði af lífsnauðsyn og hrukkótt, miðaldra mannfýla undir yfirborðinu. En hann þekkir sínar mannfýlur úr fjarska og veit vel hvenær sótt er í að dreifa hatri og bulli og afsaka það sem leið til að hlífa börnunum undan einhverju meintu afbrigðilegu „normi“ í samfélaginu. Börnin okkar verða alltaf betri en við sjálf og umburðarlyndi skiptir ætíð meira máli heldur en vafasöm gildi eldri kynslóða sem þola hvorki samkynhneigð né breytilegar skilgreiningar á kynjum.

Svarthöfði lifir eingöngu eftir þeirri lífsreglu að aðrir megi gera nákvæmlega það sem þeir vilja, svo framarlega sem þeir skaða ekki Svarthöfða á neinn máta. Aðeins ein undantekning verður til úr þessari reglu og það er þegar floti uppreisnarmanna reynir að velta nústandandi valdapýramída um koll eða reynir að eyðileggja allt það flotta dót sem Svarthöfði á. Þetta er að vísu meira prinsipp heldur en undantekning.

Félagslegu „normin“ sem öfgakennda fordómafólkið básúnar hljómar í eyrum Svarthöfða eins og meiri fantasía en nokkurn tímann Mátturinn eða loðbangsar á tveimur fótum. Í því samhengi eigum við einmitt að taka öllum bangsasamfélögum opnum örmum, ekki skjóta þau niður. Svarthöfði var ekki á þessari skoðun fyrir nokkrum áratugum, en heilabúið breyttist. Hann er gamli hundurinn sem breytti sínum brögðum, þótt hann eigi enn eftir að læra það trix að sitja á skoðunum mínum.

Svarthöfði verður nefnilega alltaf svolítið argur á Hinsegin dögum, ekki síður þegar illa gengur hjá náunganum að vera hýr í garð annarra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart