Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru um 10.000 manns á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í gærkvöld. Að mati lögreglunnar fór allt frekar vel fram. Um 15 fíkniefnamál komu upp í tengslum við hátíðina í gær.
Talsverður fjöldi hélt áfram að skemmta sér og endaði í miðbæ Reykjavíkur en það fór einnig vel fram. Mun minna var um um slagsmál og leiðindi en síðustu nótt, segir í dagbók lögreglunnar.
Fjórir ökumenn voru handteknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og aðrir sex voru handteknir fyrir að aka undir áhrifum áfegnis.