fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sauð upp úr í Costco: Dónaskapur íslenskra kvenna endaði með ósköpum – Eiríkur birtir mynd

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. desember 2019 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eiríkur Jónsson greinir frá því á vefsíðu sinni að minnstu hafi munað að til átaka kæmi í Costco nýverið. Hann birtir mynd máli sínu til stuðnings. Samkvæmt Eiríki þá hófst atvikið með því að tvær íslenskar konur kölluðu að tveimur múslímskum konum sem þar voru að versla.

„Málsatvik voru þau, að sögn sjónvarvotta sem voru fjölmargir, að íslensku konurnar höfðu komið sér fyrir í hægindastólum sem til sölu eru í versluninni þegar múslimakonurnar, með slæður sínar, áttu leið framhjá. Hófu þær íslensku þá köll að þeim með tilheyrandi rasískum dónaskap: „Go home you bloody muslims! We are not going to pay for you no more!“ osfrv,“ segir Eiríkur.

Hann segir að fílefldir karlmenn hafi skorist í leikinn. „Múslimakonunum mislíkaði eins og gefur að skilja og svöruðu fullum hálsi. Við lá að til handalögmála kæmi og þurftu fílefldir karlmenn að ganga á milli og stilla til friðar. Sem hafðist með erfiðismunum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi