fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Gylfi segir hóp hægrimanna á Íslandi tilbiðja fant og hrotta: „Ég styð heilshugar að beitt sé efnavopnum“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. desember 2019 10:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Páll Hersir jarðeðlisfræðingur segir það stórfurðulegt að Winston Churchhill, íhaldsmaður og fyrrverandi forsætisráðherra Breta, eigi sér enn fylgjendur og hvað þá hér á landi. Í pistli sem birtist á Vísi fer hann yfir svarta sögu hans. Tilefni pistilsins er frétt sem birtist í Fréttablaðinu í sumar þar sem Churchill klúbburinn á Íslandi var kynntur.

„Af einhverjum sérstökum ástæðum hefur Winston Churchill verið hampað af ýmsum hin seinni ár, m.a. af höfundi Reykjavíkurbréfs sem mærir Churchill gjarnan í skrifum sínum. Sumum finnst Churchill töff kall. Samkvæmt goðsögninni drakk hann reiðinnar býsn af sterku áfengi dag hvern og reykti marga stóra vindla, borðaði mikið og nánast steppti því að sofa – var orðhvass og fór ávallt sínu fram óháð því hvað öðrum kynni að finnast, fór hvorki að hefðbundnum reglum né almennum siðvenjum – hans var mátturinn og dýrðin, alvöru karlmaður – sönn fyrirmynd sumra, en kannski fárra!,“ skrifar Gylfi Páll.

Svört saga

Hann segir að Churchhill hafi borið ábyrgð á mörgu sem fáir geta réttlætt í dag. „Churchill var lykilpersóna í stjórnmálum Bretlands og heimvaldaríkjanna allan fyrrihluta síðustu aldar og er arfleiðin skelfileg, ekki hvað síst í fyrrum nýlendum Breta í Afríku, Indlandi og víðar. Hann reyndi hvað hann gat til þess að berja niður uppreisn frelsishreyfingarinnar í Kenía en komið var upp gaddavírsgirtum einangrunarbúðum fjarri mannabyggðum, ekki ósvipuðum búðunum þar sem Þjóðverjar geymdu Gyðinga skömmu áður og var réttilega fordæmt. Hann tók virkan þátt í að steypa af stóli lýðræðislega kjörinni stjórn Mosaddeq í Íran 1953 og koma Resa Pahlavi keisara til valda sem ríkti með skelfilegu harðræði fram til uppreisnarinnar 1979,“ segir Gylfi Páll.

Gylfi segir að Churchhill hafi einfaldlega verið rasisti. „Indland og Churchill er harðneskulegur kapítuli útaf fyrir sig. Ekki má gleyma skelfilegu loftárásum Breta á Dresden þegar heimsvaldastríðinu var í raun lokið – hermdarárás á almenna borgara, ekki ósvipuð kjarnorkuvopnaárás Bandaríkjanna á Japan sem hafði enga hernaðarlega þýðingu nema til að prófa sprengjuna. Churchill vildi rækta hinn hreina kynstofn eins og margur á þessum tíma, m.a. hér á landi, og lagði til lög sem mundu stemma stigu við „offjölgun stétta fávita og geðsjúklinga“, sem hann taldi „ógn við þjóð og kynþátt sem ómögulegt er að ýkja.“ Hann lagði til að „100.000 úrkynjaðir Bretar verði gerðir ófrjóir með valdi og aðrir settir í vinnubúðir til þess að hægja á hrörnun breska kynþáttarins.“Það munar ekki um það!,“ segir Gylfi Páll.

Notaði eiturgas á íbúa

Gylfi fer svo yfir aðdraganda þess þegar Churchhill studdi beitingu eiturgass á þorp. „Allt frá hruni Tyrkjaveldis (Ottómanveldisins) snemma á síðustu öld hafa átök heimsvaldaríkjanna um Írak verði miðpunktur átaka um olíuauðlindir í Mið-Austurlöndum. Í kjölfar þessa mændi breska ráðastéttin gráðugum augum á olíubirgðirnar og þá lykilstöðu sem Persaflóí hefur sem samgönguæð til og frá Indlandi, kórónu breska heimsveldisins og nýlendnanna í Norður-Afríku. Gerður voru fjöldi samninga við héraðsstjórnir á þessu svæði á tímum fyrri heimsstyrjaldar við þjóðernishreyfingar Araba þar sem sjálfstæði var lofað að stríðinu loknu styddu þær ekki Þjóðverja,“ segir Gylfi.

Hann fer svo yfir ástæðu þess að lönd líkt Írak og Sýrland sé með svo handahófskennd landamæri. „Þrátt fyrir það gerði Bretlandsstjórn leynilega hið þekkta Sykes-Picot samkomulag 1916 við Frakka sem kvað á um skiptingu Tyrkjaveldis. Suður-Mesópotamía (Írak), Palestína og Jórdan m.a. féllu í hlut Bretlands en Sýrland, Líbanon ásamt hluta af Tyrklandi og Írak í hlut Frakka. Þessi samningar var gerður með vitund og vilja zar-stjórnarinnar í Rússlandi og leit hann fyrst dagsins ljós eftir byltinguna í Rússlandi 1917 en byltingarstjórnin opinberaði alla leynisamninga sem zarinn hafði komið að,“ segir Gylfi Páll.

Hann segir að lokum hafi Bretar notað efnavopn á íbúa. „Í júlí 1920 varð almenn uppreisn í Írak gegn hernámi erlendra ríkja. Uppreisnin var kveðin niður með umfangsmiklum loftárásum breska flughersins á þorp Araba, m.a. var beitt eiturgasi. Ráðherra stríðsmála, Winston Churchill svaraði þegar hann var spurður út í þessa tilraun til að nota efnavopn gegn „óhlýðnum“ Aröbum: „Ég styð heilshugar að beitt sé efnavopnum gegn frumstæðum (uncivilices) ættbálkum“!,“ segir Gylfi.

„Hugrekki, staðfestu, stórlyndi, velvilja og virðingu“

Að lokum spyr Gylfi hvort þessi saga endurspegli þau gildi sem talin voru upp í Fréttablaðinu: „Í Fréttablaðinu 2. ágúst síðastliðinn er grein undir fyrirsögninni: Winston Churchill sjaldan fyrirferðameiri. Þar segir m.a. eftirfarandi: „Og aðdáun á Churchill er ekki bara bundin við Bretland því víða um heim hittast menn reglulega til að spjalla og fræðast um ævi hans og arfleið. Á Íslandi er Churchill klúbbur sem hefur verið starfræktur frá 2008. Að sögn Árna Sigurðssonar, formanns klúbbsins, er hann hugsaður sem fræðsluvettvangur um ævi og störf sir Winston Churchill og þau gildi sem hann hafði í heiðri: Hugrekki, staðfestu, stórlyndi, velvilja og virðingu fyrir lýðræði og frelsi einstaklingsins.“

Spurningin mín er þessi: Teljast þessi örfáu sögubrot sem hér hafa verið rakin til hugrekkis, staðfestu, stórlyndis, velvilja eða virðingu fyrir lýðræði og frelsi einstaklingsins?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar