fbpx
Sunnudagur 28.desember 2025
Fréttir

Borginni stefnt vegna innviðagjalda: Milljarðar í húfi – „Mér finnst þetta raunar með ólíkindum“ –

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 9. október 2019 08:24

Ráðhús Reykjavíkur.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavíkurborg hefur verið stefnt vegna meintra ólögmætra innviðagjalda sem innheimt hafa verið í tengslum við uppbyggingu á húsnæðismarkaði á undanförnum árum.

Frá þessu er greint í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins í dag, en það eru verktakafyrirtæki í samstarfi við Samtök iðnaðarins sem standa að baki stefnunni.

Ljóst er að margir milljarðar eru í húfi og bendir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, á að í Vogabyggð nemi innviðagjöld borgarinnar fimm milljörðum króna. Þá er bent á það í frétt Markaðrins að innviðagjald sé enn lagt á uppbyggingarverkefni í borginni á næstu árum og gæti innheimta þess numið milljörðum króna.

Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hagsmunaaðila í málinu, segir að engin lagaheimild sé til álagningar innviðagjalds.

„En samt sem áður er farið af stað í milljarðaframkvæmdir með tilheyrandi réttaróvissu. Mér finnst þetta raunar með ólíkindum enda hafði borgin borð fyrir báru varðandi gatnagerðargjöldin. Hún hefði getað nýtt lagaheimildir til að leggja á viðbótargatnagerðargjald en kaus að gera það ekki og fara þess í stað þá áhættusömu leið að leggja innviðagjald á lóðarhafa með einkaréttarlegum samningum,“ segir Einar Hugi við Markaðinn.

Fréttina má lesa í heild hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur

Úrskurðir ársins I: Varasamur læknir, ólögleg aflífun og „gallaður“ hundur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl

Rukkaður fyrir misheppnaða viðgerð á bíl
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur

Hin íslenska Katina er dáin 50 ára að aldri – Þekkt fyrir að ulla á áhorfendur
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova

Guðný Halla ný í framkvæmdastjórn Nova
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 5 dögum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“