fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Kringlan orðin stafræn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 23. október 2019 18:35

Kringlan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verslunarmiðstöðin Kringlan er búin að setja upp nýjar stafrænar lausnir, m.a. nýja vöruleit á vefsíðunni kringlan.is sem tengir viðskiptavini við verslunarmiðstöðina á netinu.

Viðskiptavinir geta nú fengið yfirsýn yfir allt vöruúrval verslana Kringlunnar og undirbúið verslunarferð á netinu.

,,Við lögðum fyrir ári síðan hornstein að stafrænni framtíð Kringlunnar og nú hefur takmarkinu verið náð því fjölbreytt vöruúrval verslana Kringlunnar er nú aðgengilegt á vefsíðunni kringlan.is. Markmiðið er að mæta lykilþörfum viðskiptavina nútímans sem kalla eftir stafrænu aðgengi að breiðu vöruúrvali. Með stafrænni Kringlu er hægt að fara í verslunarferð um húsið hvenær sem er sólarhringsins í gegnum heimasíðuna. Fólk getur verið í rólegheitum í stofunni heima og vafrað um Kringluna í snjallsímanum eða tölvunni, kíkt í glugga verslana og skoðað hvað það langar í,” segir Sigurjón Örn Þórsson, framkvæmdastjóri Kringlunnar.

,,Á nýju heimasíðunni kringlan.is, erum við  búin að tengja heila verslunarmiðstöð undir einn hatt þar sem aðgengilegar eru yfir 100 þúsund vörur frá um 70 verslunum. Fleiri verslanir munu bætast við á næstunni en verslanir eru þarna inni þótt þær séu ekki sjálfar með netverslun. Vöruleitin er í stöðugri þróun en gögn eru uppfærð á um það bil 15 mínútna fresti þannig að nýjustu upplýsingar eru alltaf fyrir hendi,“ segir hann og bætir við að fjölmargir samstarfsaðilar komi að þessu tæknilega risaverkefni með Kringlunni. Má þar nefna Tactica, Parallel og Kosmos og Kaos.

Auk nýrrar heimasíðu hefur Kringlan tekið fleiri stafræna þjónustuþætti í gagnið. Nýtt Kringluapp fór í loftið í sumar. ,,Kringluapp er upplýsingaapp sem veitir upplýsingar um öll gildandi tilboð í Kringlunni hverju sinni, hægt er að fá upplýsingar um allar verslanir, veitingastaði og þjónustuaðila og finna á korti. Kringluappið nýtist erlendum gestum Kringlunnar einnig vel því það er einnig aðgengilegt á ensku,“ segir Sigurjón Örn.

Hann segir að stafræn Kringla sé í takt við nýja framtíðarsýn hennar sem skemmtilegur og frumlegur miðbæjarkjarni í raunheimum sem og netheimum. ,,Verslunarmiðstöðvar hafa árum saman verið samkomustaður yngri neytenda en yngri kynslóðir Íslendinga fæddust inn í stafrænt umhverfi og markmiðið með stafrænni uppbyggingu Kringlunnar er ekki síst að koma til móts við þennan neytendahóp.“

Sigurjón Örn bætir við að einnig hafi nýtt þjónustuver verið opnað á 2.hæð þar sem staðsett eru póstbox Kringlunnar. Þar geta netverslanir verslana í Kringlunni og annars staðar boðið viðskiptavinum að sækja vörur sína.  Fleiri samstarfsaðilar Kringlunnar bjóða póstbox þjónustu. Til að mynda eru í nýju þjónustuveri póstbox frá Póstinum og Origo. Hægt er að nálgast vörur í póstboxin fram til kl. 23 öll kvöld.

Kringlan er fjölsóttasti verslunarkjarni landsins, heimsóttur af rúmlega fimm milljónum gesta árlega, og göngugata Kringlunnar er vinsælasta verslunargata Íslands. Þar sem um 170 rekstraraðilar starfrækja verslanir, veitingahúsa og kvikmyndahús, auk fjölbreyttrar þjónustu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fréttir
Í gær

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“

Sanna birtir ferðasögu: Var lengur í strætisvagninum en í fermingarveislunni – „Það var gott að fá þessa strætóreynslu“
Fréttir
Í gær

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”

Siggi stormur óvenju bjartsýnn varðandi sumarið – „Ég er eiginlega í sjöunda himni yfir þessu”