fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
Fréttir

Brynjar gagnrýnir harðlega samtökin Líf án ofbeldis – Mótmæla því að börn séu neydd til að umgangast ofbeldismenn

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 15. október 2019 19:23

Brynjar Níelsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtökin Líf án ofbeldis berjast gegn því að börn séu neydd til að umgangast ofbeldisfulla feður sína og segja það oft vera niðurstöðuna í úrskurðum sýslumanna og dómara í forsjármálum. Samtökin hafa sett upp undirskriftalista á netinu þar sem þess er krafist að dómsmálaráðherra axli ábyrgð á öryggi og vernd barna gegn ofbeldi föður.

Í texta sem fylgir undirskriftalistanum úr hlaði segir meðal annars:

„Við krefjumst þess að sjónarmið Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna séu virt í réttarákvörðun sýslumanna, dómara og dómsmálaráðuneytis og að börn eigi rétt til að hafa skoðun á sínum lífsaðstæðum og eigi rétt til verndar frá hverskyns ofbeldi. Við krefjumst þess að lagaframkvæmd sýslumanna og dómara sé í samræmi við þær áherslur sem sammælst hefur verið um í núgildandi barnalögum um aukið vægi ofbeldis við ákvörðun forsjár og umgengni. Í athugasemdum með frumvarpi til barnalaga sem varð að lögum kemur fram að líta verði á ofbeldi í víðum skilningi. Börnin eiga rétt samkvæmt lögum að njóta vafans ef einver vafi er. Við krefjumst þess að í forsjár- og umgengnismálum þar sem barn er í ofbeldishættu í samskiptum við föður hafi réttur barnsins til öryggis og verndar frá ofbeldi afdráttarlausan forgang umfram skyldu móður til að stuðla að samskiptum barnsins við föður sem beitir barnið eða aðra nákomna ofbeldi.“

Segir samtökin vega að réttarríkinu

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vakti í dag í umræðum á Alþingi athygli á bréfi sem samtökin  hafa sent þingmönnum og inniheldur væntanlega texta í anda þess sem lesa má á undirskriftasíðunni. Vefur Morgunblaðsins greinir frá þessu og hefur eftir Brynjari:

„Miðað við inni­hald bréfs­ins er fé­lags­skap­ur­inn sam­an­sett­ur af mæðrum ein­göngu sem gera þær kröf­ur að þing­menn bregðist við því sem þeir sem fara með úr­sk­urðar­vald í for­sjár- og um­gengn­is­mál­um, þ.e. sýslu­menn og dóm­stól­ar, gera. Fé­lags­skap­ur­inn vill að við skipt­um okk­ur af því og breyt­um ein­hvern veg­inn um­hverf­inu vegna þess að niðurstaðan hent­ar ekki.“

Brynjar segir tilmæli samtakanna til þingmanna vega að réttaríkinu:

„Ég mun ekki taka þátt í slíku og ég vona að öðrum þing­mönn­um detti það ekki í hug. Fólk er hér í þeirri bar­áttu að það ger­ir kröfu um að við víkj­um til hliðar regl­um rétt­ar­rík­is­ins sem við erum búin að strögla við að koma á árum, ára­tug­um og jafn­vel öld­um sam­an. Ég bið þing­menn að íhuga þetta.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Brotist inn í kirkju

Brotist inn í kirkju
Fréttir
Í gær

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun

Raunlaunahækkun formanns VR er 188.936 kr. – Fyrri formenn voru með hærri laun
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga

Gufunesmálið í Landsrétti: Verjendur segja dómana allt of þunga
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið

Nýja húsnæðið henti ekki Samhjálp og eigi að vera tímabundið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“

Sjá fjármálin ekki sömu augum – „Rekstur Kópavogsbæjar er ekki sjálfbær“ – „Árangurinn af góðum rekstri er augljós“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf

Ólafur svarar Guðna fullum hálsi og hvetur hann til að hringja í Þórólf