fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Hríðarveður í kvöld og færð gæti spillst

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 20. janúar 2019 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi, Faxaflóa og Breiðafirði vegna hríðarveðurs sem skellur á í kvöld. Búist er við suðaustan 15-23 metrum á sekúndu með snjókomu eða slyddu en úrkoma færir sig yfir í rigningu nærri sjávarmáli og hlýnar.

Í viðvörun á vef Veðurstofunnar kemur fram að skilyrði til aksturs gætu orðið erfið vegna takmarkaðs skyggnis og snjóþekju, sér í lagi í uppsveitum og á heiðavegum, til dæmis Hellisheiðu, Bröttubrekku og á Vatnaleið.

Búist er við því að versta veðrið verði milli klukkan 18 og 22 í kvöld.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að skil komi upp að suðvestanverðu landinu um kvöldmatarleytið. „Eftir snjókomu gærdagsins og áframhaldandi éljagang í dag eru líkur á að eitthvað af snjónum muni bráðna í kvöld þegar hlýnar, en á morgun kólnar aftur og er því viðbúið að svell myndist.  Á morgun lægir víða og á þriðjudag og miðvikudag er útlit fyrir kalt hæglætisveður um allt land með éljum á víð og dreif.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar