fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Magnús grunaður um fjársvik upp á 1,8 milljarða

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 27. september 2019 07:55

Magnús Ólafur Garðarsson og Teslu-bíll sem var í eigu hans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú hafa verið gefnar út þrjár stefnur á hendur Magnúsi Ólafi Garðarssyni, stofnanda United Silicon, vegna meintra fjársvika hans. Í heildina er hin meintu fjársvik hans talin nema um 1,8 milljarði króna. Nýjasta stefnan er frá þrotabúi Sameinaðs silíkons hf. og er upp á rúmlega 1,2 milljarða.

Fréttablaðið skýrir frá þessu. Haft er eftir Geir Gestssyni, lögmanni þrotabúsins, að ekki liggi ljóst fyrir hvort það muni höfða fleiri dómsmál á hendur Magnúsi.

Hin meintu fjársvik hans eru enn til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara.

Fréttablaðið segir að nýjasta stefnan snúi að málefnum fyrirtækisins Stakksbrautar 9 sem Sameinað silíkon hf. yfirtók í byrjun desember 2014. Tveimur vikum síðar lét Magnús fyrirtækið greiða 77 milljóna króna reikning frá hollensku fyrirtæki, Silicon Mineral Ventures. Í stefnunni kemur fram að reikningurinn sé falsaður og að peningarnir hafi verið notaðir til að greiða upp lán Tomahawk Development á Íslandi hf. við Silicon Mineral Ventures sem var í eigu Magnúsar. Magnús er einnig sagður hafa látið Stakksbraut 9 greiða rúmlega milljarð inn á reikninga hollenska fyrirtækisins Pyromet Engineering í 26 greiðslum. Hollenska fyrirtækið var stofnað skömmu fyrir fyrstu millifærslunar og slitið rétt eftir þá síðustu.

Fréttablaðið segir að í stefnunni komi fram að engin bókhaldsgögn fyrir Stakksbraut 9 hafi fundist og er því haldið fram að Magnús hafi látið farga þeim. Einnig kemur fram að hann fari huldu höfði til að forðast kröfuhafa sína. Blaðið segir að hann fari þó alls ekki huldu höfði á samfélagsmiðlum þar sem hann birti myndir af ferðalögum sínum og unnustu sinnar, þar á meðal til Íslands. Magnús er einnig sagður stunda umfangsmikla útleigu á einbýlishúsi sem hann á í Kópavogi án þess að hafa sótt um tilskilin leyfi fyrir þeirri starfsemi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni

Lögregla kölluð út vegna tjaldbúða í miðborginni
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“

Fordæmalaus staða gæti komið upp á gosstöðvunum á Reykjanesskaga – „Þetta er fyrsta skiptið sem við sjáum svona“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar